Úkraína er þurfalingur - Rússa eða vesturlanda

Án aðstoðar frá vesturlöndum hefði Úkraína aldrei verið í standi til að berjast við Rússland. Með vestrænni aðstoð gátu Selenskí forseti og stjórnin í Kænugarði haldið aftur af rússneska innrásarliðinu um sinn. En tæplega mikið lengur.

Á austurvígstöðvunum hafa Rússar brotist í gegnum varnarlínu Úkraínumanna. Rússar tóku bæinn Popasna fyrir nokkrum dögum. Þaðan sækja þeir í vestur, austur og norður. Sóknin í norður gæti umkringt stóran hluta Úkraínuhers. 

Rússar eru sigurvissir þessa dagana. Selenskí biður um viðræður, sem er veikleikamerki. Til skamms tíma bönnuðu vestrænir bakhjarlar stjórnarinnar í Kænugarði viðræður við Rússa. Þrjár ástæður gætu leitt til breyttra viðhorfa á vesturlöndum.

Í fyrsta lagi er sókn Rússa jöfn og stöðug þótt ekki sé hún hröð. Meiri líkur en minni eru að Úkraínuher tapi á austurvígstöðvum. Ef tapið verður stórt gætu flóðgáttir opnast. Ef Úkraínuher tekst sæmilega til með skipulegt undanhald Donbass-hernum bjargað en héröðin sjálf yrðu rússnesk.

Í öðru lagi bíta viðskiptaþvinganir ekki á Rússa sem skyldi. Þeir selja eftir sem áður gas og olíu austur og vestur, rúblan er stöðug og fá merki um að yfirvofandi sé efnahagsleg upplausn.

Í þriðja lagi er fyrirsjáanlegur skortur á korni á heimsmarkaði. Úkraína er brauðkarfa Evrópu en fátt kemur þaðan af hrávöru í stríðsástandi. Afleiðingar eru dýrtíð í Evrópu og möguleg hungursneyð í Afríku. 

Ef vesturlönd telja úkraínskan ósigur fyrirsjáanlegan gætu þau leyft friðarviðræður. En þá færu í hönd óvissutímar í innanlandspólitík Úkraínu. Stjórn Selenskí gæti riðað til falls ef hún viðurkennir yfirráð Rússa yfir Donbass í austri og Kherson-héraðinu norðan Krímskaga. Það yrðu lágmarkskröfur Rússa.

Efnahagur Úkraínu er illa farinn. Niðurlægjandi friðarsamningar ofan á harða efnahagskreppu er uppskrift að langvinnum óstöðugleika ef ekki samfélagslegri upplausn.

Veðmálið um að þrátefli á vígvelli gæti leitt til samninga í anda jafnræðis er tapað. Báðir aðilar hafa fórnað of miklu til að sættast á jafntefli. Úrslit þarf að knýja fram þar sem annar stendur uppi sem sigurvegari.

Í stuttu máli: vesturlönd yrðu að fjármagna væntanlega friðarsamninga til að halda Selenskí-stjórninni við völd. Það myndi kosta óheyrilegar fjárhæðir og e.t.v. loforð um að taka afganginn af Úkraínu inn í Evrópusambandi - sem mörgum í Vestur-Evrópu er þvert um geð. Það yrði stór biti að kyngja fyrir ESB að taka inn ríki með lamað stjórnkerfi er telst varla þykjustulýðræði hvað þá meira.

Ef vesturlönd heykjast á verkefninu yrðu Rússar meira en tilbúnir að sjá um útfærslu friðarsamninga. Úkraína væri þar með hjálenda Rússlands.

Fyrirséð er að Úkraína verði þurfalingur á annarra framfæri til lengri tíma. Tap í stríði, kennir sagan, skilur eftir ónýtt stjórnkerfi stríðsaðila sem veðjaði á sigur. Engar líkur eru á óbreyttu ástandi í Kænugarði eftir frið við Rússa.  


mbl.is Selenskí segir stríðið ekki enda nema með viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

I þessum skrifuðu orðum er ég á leið frá rússnesk landamærunum suður til Teblisi. Hér keyrir maður kílómeter eftir kilometer framhjá kyrrstæðum vöruflutningabílum sem bíða eftir að komast með vörur yfir landamærin. Þó flutningsmálin séu í hálfgerðu lamasessi vegna Ukrainu stríðsins þá virðist ekki skortur á varningi á leið til Rússlands.

Refsiaðgerðir eru því ekki að bíta eins og til var ætlast. Rússar geta hinsvegar þjarmað að þeim sem þeir kjósa eins og við fengum að finna fyrir. 

Ragnhildur Kolka, 22.5.2022 kl. 14:00

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Undarlegt með þetta korn
Alþjóðasamsteypur eiga alla kornakra í Úkraínu
Þessar samsteypur tapa aldrei peningum ef það verður skortur þá hækka þeir bara verðið
SÞ tala um að nauðsynlegt sé að tæma korngeymsurnar í Úkraínu til að fæða fólkið í Afríku - en einhvernveginn sér maður ekki fyrir sér að það sé verið að framleiða neitt korn í Úkraínu?
Svo þessar kornbirgðir verða þá ekki endurnýjaðar?

Grímur Kjartansson, 22.5.2022 kl. 22:46

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Hér geta menn áttað sig á gerræði vesturveldanna að fyrirskipa strax refsigerðir sem bitna á almenningi og þiggja lof fyrir í hliðhollum heimsmiðlum.

Eða hér sjá þeir það greinilega nú.

Helga Kristjánsdóttir, 22.5.2022 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband