Veira niður, verðbólga upp, aðgerðir strax

Lágir farsóttarvextir og ríflegt ríkisframlag til fyrirtækja stefna þjóðarskútunni í strand á skeri verðbólgu. Hröð aflétting hafta og stórfelldur innflutningur á vinnuafli til að mæta yfirbókunum flugfélaga gerir illt verra. 

Stíga ætti fast á  bremsurnar, afturkalla efnahagspakka vegna farsóttar og hækka stýrivexti myndarlega, 1 til 1,5% strax, og meira þegar líður á árið. Neikvæðir raunvextir hamla sparnaði og auka lausung í fjármálum fyrirtækja og heimila. Verðtryggð húsnæðislán eru tímasprengja sem tifar hratt með hækkandi verðbólgu.

Víst verður grátið nokkra mánuði en það er mun skárri kostur en yfir 5 prósent verðbólga í nokkur misseri eða ár og óöld á vinnumarkaði. Án aðgerða er fyrirsjáanlegt fjármálafyllerí þar sem langtímahagsmunum er fórnað fyrir stundarhag.

Seðlabankinn hjálpar til með að halda ekki aftur af styrkingu krónunnar. Kaupgeta Íslendinga eykst, það  mildar verðbólguskotið. Færri ferðamenn koma með hærra gengi og minni þörf verður á innflutningi vinnuafls. Það er brýnt að hægja á þenslunni meðan afléttingar sóttvarna eru ekki að fullu gengnar fram.

Tíminn er núna. Í vor er of seint í rassinn gripið.

Kata, Bjarni og Sigurður, grípið í neyðarhemilinn. Strax.


mbl.is Húsnæðið hækkar áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

      "hart í bak" !!

Helga Kristjánsdóttir, 1.2.2022 kl. 14:57

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þórólfur gefur sig ekki og segir að veiran sé ekki hættulaus, þótt enginn hafi haldið því fram né vænst þess, enda ómögulegt.

Nú verður að parkera þessum manni. Þetta er farið að snúast um að vernda sinn eigin rass en ekki almannahag. Hann er með rörsýn á tölur og gröf án tillits til almannahagsmuna. Persónuleg og patológísk ábyrgðarfælni ræður för. Hann er að vernda einn spítala frá hugsanlegu,kannski, mögulegu álagi og skítt með allt hitt.

Jón Steinar Ragnarsson, 1.2.2022 kl. 16:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband