Bandalag RÚV og Fréttablaðsins: Samherjagrýlan skal lifa

RÚV keypti heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu um helgina, auglýsti starf fréttastjóra og dagskrárstjóra. Í sama tölublaði birtist tvöfalt drottningarviðtal við Helga Selja og Stefán útvarpsstjóra. Um miðja síðustu viku gerði Fréttablaðið RÚV þann greiða að birta frétt er héldi Samherjagrýlunni á lofti.

RÚV berst fyrir lífi sínu og þarf á stuðningi annarra fjölmiðla að halda. Lögreglurannsókn á aðild RÚV að eitrun Páls skipstjóra og stuldi á síma hans er á síðustu metrunum.

Drottningarviðtal Fréttablaðsins við Helga Seljan og Stefán útvarpsstjóra gæti verið skrifað af almannatengli RÚV. Stefán er nýbúinn að fórna Rakel fréttastjóra en hún er ekki einu sinni nefnd á nafn. Rakel er ekki í handritinu,  aðeins einn er í aðalhlutverki. Hér talar útvarpsstjóri:

„Hvað Helga Seljan varðar sérstaklega þá er það sigur fyrir íslenska þjóð og blaðamennsku að þessi öflugi blaðamaður haldi áfram sínum störfum.“

Það er ekkert annað. Þjóðin mun farast og landið verður óbyggilegt ef Helgi Seljan hættir blaðamennsku. Ef svo er hvers vegna heldur Helgi ekki starfinu á RÚV? Hvers vegna er Jesú Kristur blaðamennskunnar sendur í útlegð á Stundina? Ræður Stebbi útvarpsstjóri ekki húsum á Efstaleiti? Af hverju gerir hann ekki Jesú-Helga að fréttastjóra? Ekki skortir meðmælin. 

Jú, það er þetta lítilræði með lögreglurannsóknina. Blaðamaður Fréttablaðsins lætur sér ekki detta í hug að spyrja um almælt tíðindi. Samsærið gengur út á að láta eins og allt sé með felldu þótt Efstaleiti standi í ljósum logum. Omertá heitir það á Sikiley þegar innvígðir félagar stunda afbrotaþöggun. RÚV er þegar með Stundina og Kjarnann í vasanum. Núna er komið bandalag við Fréttablaðið. Auglýsingasamningurinn við Efstaleiti hlýtur að vera feitur þegar fórnað er bæði fagmennsku og trúverðugleika. Einnig eru tvær stjórnendastöður lausar á Efstaleiti. Fé og stöðuveitingar kaupa málafylgju. 

RÚV skipulagði í sumar hvernig ætti að bjarga Glæpaleiti frá snörunni. Úr ósvífnum blaðamanni með siðadóm á bakinu átti að búa til helgisögu um píslarvætti. Á haustdögum var Helgi sendur í viðtal hjá Gísla Marteini að játa sig geðveikan vegna ,,árása" Samherja.

Svokallaðar ,,árásir" fólust í því að Samherji lét gera myndbönd til birtingar á You Tube sem sýndu aðra hlið á Namibíumálinu en RÚV hélt á lofti. Helgi hreinlega bilaðist þegar hann sá myndband um Namibíumálið sem hann ritstýrði ekki sjálfur. Svo mikið er víst að ekki var eitrað fyrir Helga og engu stolið frá honum. Samt á Helgi voða bágt, segir handritið.

Tilfallandi höfundur afhjúpaði leikritið. Þá gekk allt af göflunum. Virkir á Glæpaleiti tóku til starfa og heimtuðu tilfallandi höfuð á fati, bæði atvinnu- og ærulaust.

Fréttablaðið má reyna að blása lífi í Samherjagrýluna og fórna orðsporinu. Þeir sem kunna að lesa vita um falska ákæru fréttaengils sem sá sýnir að maður úti á rúmsjó gerði sér fyrirsát í 101 Reykjavík. Sannhelgur maður gengur ekki um ljúgandi stórsökum á meðborgara sína.

Glæpaleiti verður ekki forðað frá snörunni. Sorrí, Stebbi, en fréttastofa sem stundar glæpi, eitrun og gagnastuld, er ekki fréttamiðill heldur mafía. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

''Mafía er það og mafía skal það heita.''

Heimir Lárusson Fjeldsted, 17.1.2022 kl. 12:21

2 Smámynd: Kristinn Sigurjónsson

Ég yrði ekki hissa þótt fleiri topp störf verði fljótlega auglýst í Glæpaleiti.

Kristinn Sigurjónsson, 17.1.2022 kl. 12:40

3 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Höfundur góður, þar sem það liggur fyrir að höfundur hefur aðgengi að meiri upplýsingum en venjulegir leikmenn og konur hafa og það liggur fyrir að höfundur fékk þær upplýsingar sendar eða beðinn að birta þær samkvæmt umboði.

Þar sem h0fundur metur sjálfan sig ekki sem "Þjófsnaut" eins og hann kallar sér mun betri blaðamann, fyrir aðgengi að upplýsingum sem höfundur er mjög ósáttur með, þá hlýtur það að vera höfundi í lófa lagið að upplýsa frá þeim sem hann þiggur sínar upplýsingar um það sem kann að varða rannsókn á einu OHF fyrirtæki hér á landi.

Getur ekki verið flókið ef upplýsingar höfundar eru ekki stolnar eða illa fengnar.

Svo á meðan ég man, vill höfundur kalla blaðamann einn sem situr nú í fangelsi í því dásemdarlandi sem h0fundur gladist mjög við úrgöngu úr ESB, balaðamann að nafni Julian Assange þjófsnaut fyrir að bira upplýsingar um hroðaverk hermanna Bandaríkjahers ? 

Sigfús Ómar Höskuldsson, 17.1.2022 kl. 16:15

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Hvaða óþol er þetta Sigfús - má tilfallandi ekki bara treina spennuna? Kannski er hann bara að æfa sig í spennusöguskrifum og við vitum að glæpir eru alltaf upplýstir í lok bókar.

Flestir lesa sig í gegnum bókina en sumir, eins og þú, vilja byrja lesturinn aftast.

Leyfum höfundinum að stjórna frásögninni. 

Ragnhildur Kolka, 17.1.2022 kl. 16:42

5 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Rétt metið hjá þér Kolka, enda dapurt að vera biðja um upplýsingarnar frá höfundi í miðri skáldsögu, sem byggir á öngvum staðreyndum í þessari bók....

Sigfús Ómar Höskuldsson, 17.1.2022 kl. 17:08

6 Smámynd: Grímur Kjartansson

Sigfús

Finnst þér virkilega að þeir blaðmenn sem eltu Hönnu Birnu í marga mánuði hefðu átt að upplýsa strax að þeir vissu að þetta var aðstoðarmaðurinn sem lak?
Ef það hefði verið einhver annar en þessi eini starfsmaður sem Hanna Birna handvaldi þá hefðu þeir verið löngu hættir að elta þessa "frétt"

Grímur Kjartansson, 17.1.2022 kl. 17:57

7 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Grímur, þér er auðvitað frjálst að meta það lögbrot sem fór fram í þ.v Innanríkisráðuneyti undir stjórn þ.v varaformans Sjalla. 

Hvað það tengist því sem höfundur ræðir hér ítrekað veit ég ekki. 

Það kann vel að vera að höfundur viti e-ð meira en þú og ég vitum, það er hluti þess sem blaðamenn kunna oft að vita, þó svo að höfundur sé auðvitað ekki blaðamaður í neinum skilningi þess orðs.

Gott samt hjá þér að rifja upp þetta afrek f.v dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins. 

Merkilegt með þessar mektarkonur sem hafa sinnt þessu starfi, að vera dómsmálaráðherra, á vegum Sjalla hafa tekist að sinna því um skemmri tíma vegna lögbrota í sínu starfi. 

Höfundur mætti fjalla meira um það hér, það er þá til að mynda staðreynd, annað en það sem höfundur skrifar hér um án einna einustu staðreyndar.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 17.1.2022 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband