Helgi Seljan játar sig geðveikan

Fréttamaður RÚV, Helgi Seljan, var í viðtali hjá öðrum RÚV-ara, Gísla Marteini, og sagði þetta samkvæmt frásögn á Eyjunni:

„Ég hef svo sem sagt frá því áður, ég er veikur fyrir. Ég hef þurft að leggjast inn á geðdeild,“ svaraði Helgi.

Sá sem er geðveikur er hvorki með sjálfan né heiminn á hreinu. Annars væri hann ekki geðveikur. Sá sem er læs á sjálfan sig er í standi til að taka ákvarðanir á lífsins vegferð. Til að skilja heiminn í kringum sig þarf maður að botna í sjálfum sér. Skilgreiningin á geðveiki er að tapa áttum, ekki smávegis eða í skamma stund, heldur verulega og til lengri tíma. Sá sem leggst inn á geðdeild er kominn í slíkar ógöngur að aðeins duga stórtæk inngrip læknisvísinda til að færa geðheilsuna í samt lag. Annars eru menn heima, taka lyfin sín, stunda reglulega hreyfingu og feta sig áfram til að takast á við lífið á ný.

Helgi sýndi skýr þráhyggjueinkenni þegar hann skipulagði aðför að Samherja árið 2012. Hann afsakaði ,,linnulausa böggið" sitt. Böggið reyndist skáldskapur sem farið var ítarlega yfir í dómskerfinu og hafnað frá a til ö. En Helgi böggaðist áfram enda illa tengdur veruleikanum.

Siðanefnd RÚV úrskurðaði að Helgi hefði alvarlega brotið siðareglur með framgöngu sinni í Samherjamálinu. Viðbrögð Helga voru í meira lagi undarleg. Hann sagðist hafa fullt leyfi til að flétta saman fréttum og persónulegu mati sínu og gildisdómum. Siðareglur segja eitt en Helgi má það sem öðrum leyfist ekki. Stórmennskubrjálæði kemur í ýmsum myndum. 

Kúltúrinn sem Helgi hefur tekið þátt í að móta er þannig lýst af manni sem varð fyrir barðinu á vinnulagi samverkamanna Helga á Efstaleiti:

„Það er mögulegt að búið sé að skrifa handritið og það er mikilvægt að vita hvort þú sért í „góða“ liðinu eða „vonda“ liðinu. Ef þú ert í „vonda“ liðinu er sennilega ekki þess virði að taka þátt því Kveikur mun einungis birta þau brot úr viðtalinu sem hentar þeirra málflutningi og sennilega fá viðmælendur úr „góða“ liðinu til að „leiðrétta“ þín orð.“

Þeir sem búa að heilbrigðri dómgreind vita að í mannlífinu eru hlutirnir sjaldnast svartir eða hvítir. Þeir sem eru skyni skroppnir eru aftur iðulega sannfærðir að heimurinn skiptist í illmenni og góðmenni.

Helgi er núna í játningarferli líkt og þeir sem eru komnir í sjálfheldu og vilja vinna í sínum málum. Vonandi nær hann bata.

Burtséð frá bataferlinu er í meira lagi undarlegt að geðveikur maður fari með víðtækt dagskrárvald á ríkisreknum fjölmiðli, RÚV. Geðveikur Helgi skipuleggur í áravís skandal hægri vinstri, skáldar ef ekki vill betur til. Sá geðveiki fær fullt umboð yfirstjórnar RÚV til að flytja áróður klæddan í búning frétta.

RÚV fór ómjúkum höndum um borgarstjóra sem var tæpur á geði og sýndi hann gúgú og gaga í skemmtiþætti á besta útsendingartíma. En nú er það gúgú og gaga sem stjórnar dagskránni á Efstaleiti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Viðkvæmt umræðuefni, en líklega nauðsynlegt að taka til umfjöllunar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 17.10.2021 kl. 15:00

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Af hverju er RUV ekki löngu búið að seljann?

Jón Steinar Ragnarsson, 17.10.2021 kl. 18:03

3 Smámynd: Skeggi Skaftason

Þarna topparðu þig sjálfan í lágkúrunni Páll.

Éttu skít.

Skeggi Skaftason, 17.10.2021 kl. 20:49

4 Smámynd: Sigurður Helgi Magnússon

Skil vel að Davíð Oddson elski þennan bloggara. Þetta er mesta lágkúra sem ég hef séð á prenti. 

Sigurður Helgi Magnússon, 18.10.2021 kl. 00:43

5 Smámynd: Kristján G. Arngrímsson

Þú þyrftir eiginlega, Páll, að vita hvernig eiginlega skilgreining á geðveiki er áður en þú ferð að tjá þig um málið. Eins og þetta er hjá þér núna er þetta bara bull og æla og þú enn og aftur ber að skítlegu eðli.

En kannski færðu kikk út úr því að láta fólk sparka í þig, sumir eru þannig. Er það ekki einhverskonar geðveiki?

Kristján G. Arngrímsson, 18.10.2021 kl. 14:33

6 Smámynd: Kokksi

Ég hef aldrei tekið mark á þínum skrifum en þessi síðasta lágkúra þín er þér ekki til framdráttar, en Davíð borgar þér fyrir skítkast þitt. SVEI ÞÉR.

Kokksi, 18.10.2021 kl. 15:06

7 Smámynd: Kjartan Eggertsson

Geðveiki hefur ekki mátt ræða í okkar samfélagi á opinberum vettvangi.  Gott hjá Helga Seljan að játa veikindi sín.  Einhverjir hér á blogginu viðkvæmir fyrir því að athafnir Helga séu settar í samhengi við hans veikindi. Slæm samviska hefur t.d. áhrif á geðheilsu fólks.

Kjartan Eggertsson, 18.10.2021 kl. 15:27

8 Smámynd: Kristján G. Arngrímsson

Það er beinlínis rangt, Kjartan, að geðveiki hafi ekki mátt ræða opinberlega í okkar samfélagi. Það er fullt af umræðu um hana. Slepptu því að fara í fórnarlambshlutverkið. Ég efast um að þú hafir minnstu hugmynd um hvað geðveiki er og ruglir henni saman við rangar skoðanir.

Kristján G. Arngrímsson, 18.10.2021 kl. 15:38

9 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Þetta er bara "trend" hliðvarsla hjá elítunni. Ég hef lýst því yfir í öllum vídjófærslunum mínum undanfarið að ég sé sjálfur klikk og enginn hafi leyfi til að taka mark á mér. Hermikrákuháttur er besta hólið.

Guðjón E. Hreinberg, 18.10.2021 kl. 16:40

10 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Hvað og hverjum kennir þú?  Mér finnst þú fyrirlitlegur, fundist það lengi en aldrei sem nú.  Djöfull ertu minniháttar!

Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.10.2021 kl. 19:08

11 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Sem betur fer er einskonar frelsi í þessum heimi og með því er okkur frjálst að skrifa okkar eigin grafskrift með hegðun okkar og orðum í gegnum tíðina.

Mér sýnist, Páll, af þessum skrifum þínum, að þú stefnir á:
"Lágkúruleg vandarsleikja, steinsmuguháleistur og dusilmannildi."

Góðar stundir.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 20.10.2021 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband