Þjóðin vill stöðugleika en fær óreiðu

Þjóðin myndi endurnýja umboð sitjandi ríkisstjórnar, ef þess væri kostur á kjördag. En það eru engir ríkisstjórnarkostir í boði heldur níu framboðslistar.

Stjórnmálakerfið þjónar illa þjóðinni. Kverúlantaframboð eiga auðvelt með að koma sér á framfæri á tíma félagsmiðla. Rausnarleg framlög almannafjár til stjórnmálaflokka bæta ekki úr skák.

Kosningaúrslitin stefna í að vera heimatilbúin handvömm almennings sem ætti að vita betur en að kjósa yfir sig kverúlanta.


mbl.is Ríkisstjórnin heldur ekki velli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ertu ekki sammála mér um að tak upp FORSETAÞINGRÆÐI hér á landi

(eins  og er í frakklandi) 

þannig að FORSETI ÍSLANDS þyrfti sjálfur að leggja af stað

með stefnurnar í stóru málunum

og þó að það þyrfti að kjósa slíkan mann í tveimur kosninga-umferðum

þannig að viðkomandi hefði allavega 51% kosningamannbærra á bak við sig

að þá gæti slíkt sam verið skárri kostur

heldur en þær marg-flokka-flækjur sem að blasa við okkur í dag.

Jón Þórhallsson, 17.9.2021 kl. 08:02

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Finnst þér Jón þetta virka svo vel í USA?
Í mbl í dag var bent á að Clinton skrifaði undir Kyota bókunina og fékk heimsfrægð fyrir en Clinton reyndi ekki að leggja þessa bókun fyrir þingið og þar með hafði plaggið enga þýðingu í USA en hefur óspart verið notað í alþjóðlegu samhengi.

Grímur Kjartansson, 17.9.2021 kl. 08:13

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Í frakklandi geta allir boðið sig fram 

og það er kosið aftur á milli tveggja efstu manna

þannig er KJARNINN greindur frá hisminu.

í usa hefur fólk bara 2 valmöguleika;

asnann eða fílinn.

Jón Þórhallsson, 17.9.2021 kl. 08:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband