Júróvisjón og ástand vestrænnar menningar

Söngvakeppnin kennd við Evrópu er menningarfyrirbæri. Þar má lesa hvernig háttar samfélaginu sem fyrirbærið tilheyrir. 

Glitrandi skrautbúningar og frökk sviðsframkoma réð ferðinni í sumum atriðum. Þar sveif yfir vötnum andi hnignunar. Búlgaría tefldi fram saklausri stúlku sem dásamaði föður sinn. Úkraína sýndi þjóðlegan fróðleik með hvassri þjóðernishyggju. Atriði Frakklands var óður til veraldarhyggju þar sem innflytjandi söng nútímaútfærslu af þjóðsöngnum La Marseillaise. Framlag Þjóðverja var yfirlýsing að þeim þætti keppnin leiðinleg. Bretar sendu Brexit-framlag.

Ítalska sigurlagið var dauðarokk hljómsveitar með norrænu nafni og söngvara sem ekki vissi almennilega í hvaða heimi hann ferðaðist.

Framlag Íslendinga var heilsteyptur þjóðarsómi, bæði söngatriðið og stigakynningin. Sviðsatriðið var upptaka í leikskólastíl þar sem sungið var á útlensku. Stigakynningin var senuþjófur. Búralegur kynnir gaf 12 stig til dægurlags sem ekki var í keppninni.

 


mbl.is Segist ekki hafa neytt kókaíns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

 78% af þessum lögum eru smituð af gaypride/Illumanati-ómenningunni;

þar sem að allt gegnur út á fíflalæti, djöfladýrkun  

og blikk-ljósa-showið er það yfirþyrmandi að það veldur HUGARMENGUN

að horfa í myndefnið.

Jón Þórhallsson, 23.5.2021 kl. 10:59

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

78% af þessum lögum eru smituð af gaypride/Illumanati-ómenningunni;

þar sem að allt gegnur út á fíflalæti, djöfladýrkun  

og blikk-ljósa-showið er það yfirþyrmandi að það veldur HUGARMENGUN:

https://www.facebook.com/Taketheredpill7/videos/4318155568208265

Jón Þórhallsson, 23.5.2021 kl. 11:51

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þetta gerðu stjórendur Juróvísjón Íslands frábærlega humorinn ekta íslenskur og féll i góðan jarðveg.Einhverjir vina minna héldu að eg tæki til að dæma annara þjóða framlög og báðu mig að hætta þessu blogg athugasemdum,ég þver tók fyrir það. Er þessi miðill ekki fyrir frjálsborna Islendinga? En ritstjórinn ræður.

Helga Kristjánsdóttir, 23.5.2021 kl. 13:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband