Þriðjudagur, 4. maí 2021
Samfylkingin og glæpir
Á alþingi, undir liðnum störf þingsins
tók Helga Vala Helgadóttir úr Samfylkingunni til máls og skoraði á ríkisstjórnina að bregðast við manneklu og fjárskorti lögregluembætta landsins vegna uppgangs skipulagðar glæpastarfsemi.
Til skamms tíma var Samfylkingin full andúðar á lögum og reglu. En nú vill fylkingin taka fast á glæpum og misindismönnum, einkum þeim sem skolar á land. Verjum landamærin og aukum löggæslu.
Samfylkingin er veðurviti íslenskra stjórnmála. Nú blása íhaldsvindar og fylkingin ekur seglum til að njóta byrjar.
Vill aldurstakmörk á snjallsíma og samfélagsmiðla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.