Með lögmönnum skal land smita

Fyrirsögnin er fengin úr páskaeggjamálshætti sem gengur á samfélagsmiðlum.

Sumir lögmenn, t.d. Ómar R. Valdimarsson, slógu sjálfa til tvöfaldrar riddaratignar pólitísks rétttrúnaðarins, þóttust vinna kauplaust í þágu mannréttinda.

Á lögmenn verður ekki logið.


mbl.is Þórólfur kærir til Landsréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Til þess eru lögmenn að forða fólki undan valdbeitingu ríkisvaldsins. 

Ragnhildur Kolka, 6.4.2021 kl. 17:35

2 Smámynd: Halldór Jónsson

var þessi Ómar ekki sorpblaðamaður í gamla daga? Eða er ég að rugla?

Halldór Jónsson, 7.4.2021 kl. 02:48

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þá er ég líka komin með rugluna því þeir voru tveir al-nafnar á þeim tíma þegar maður keypti 2-3 dagblöð, ég treysti mér til að þekkja annan,sá hann oft í Þinghólsskóla/Kársnesskóla,hefði kannski kosið hann þá væri hann í framboði.En nú verður maður að vanda sig eins og Vanda Sig.

Helga Kristjánsdóttir, 7.4.2021 kl. 04:13

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Forfeður okkar og mæður komu hér til að losna undan ofríki þeirrar tíðar lögspekinga í Skandinavíu og hér hafa forverar okkar verulega þurft að hafa fyrir lífinu, en það þarf alltaf að líta eftir til að halda í horfinu.

 

Í alllangan tíma hefur mér þannig litist til að með lærdómi barna sem einkum byrjar með lestri, skrift og reikningi þurfi að hafa með lögfræði, því að máttur lögfræðinga er orðin svo yfirdrifin að við verðu öll að vera lögfræðingar.

 

Vera okkar í þessari nútíma lögfræði krýsu má einkum og sér í lagi kenna heimsku og kæruleysi og leti löggjafans. En við sjálf berum þar ábyrgð.

 

Allt of margir flokkar skapa ringulreið og ekki orð um það meir, eða ???

 

 

Hrólfur Þ Hraundal, 7.4.2021 kl. 06:11

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Fasistarnir ávallt samir við sig!

Þorsteinn Siglaugsson, 7.4.2021 kl. 13:46

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Og hvar eru fasistarnir Þorsteinn?

Hrólfur Þ Hraundal, 7.4.2021 kl. 16:12

7 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Fasistarnir eru þeir sem vilja afnema lög og mannréttindi til að þjóna og næra eigin sótthræðslu.

Þorsteinn Siglaugsson, 7.4.2021 kl. 19:06

8 Smámynd: Geir Ágústsson

Er síðuhöfundur að draga úr mikilvægi þess að yfirvöld fari að eigin lögum?

Ólöf eru vissulega til, sem almenningur brýtur að sjálfsögðu, en að yfirvöld brjóti eigin lög er ekkert til að hlakka yfir.

Geir Ágústsson, 7.4.2021 kl. 19:17

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Ég sé enga ástæðu til að hlakka yfir neinu í þessu máli, jafnvel þó að klaufalegur, hrokafullur ráðherra hafi gert á sig.

Hrólfur Þ Hraundal, 7.4.2021 kl. 22:17

10 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Til athugunar fyrir Þorstein Sigurlaugsson, að ef eingin varúð hefði verið viðhöfð varðandi þessa Kínaveiru hérlendis, þá væri hann mögulega nú þegar steindauður, sem eftir lifendum hefði þótt misjafnlega miður.

Hrólfur Þ Hraundal, 7.4.2021 kl. 23:03

11 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég meintur fasisti upplýsi Þorstein á að ég er miklu hræddari um afkomendur mína en sjálfa mig. Ung  eiginkona barnabarns míns  sem kom frá USA fyrir áramót var ekki að æmta þótt væru í sóttkví undir eftirliti nálægt Smáralind og hafði samt í næg hús að venda.

Helga Kristjánsdóttir, 8.4.2021 kl. 00:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband