Logi: Ísland er ónýtt

Logi formaður Samfylkingar segir Ísland vont land. Hér er ,,kerfisbundið misrétti", þeir ríku haldi landinu í heljargreipum misréttar og alþýða manna lepji dauðann úr skel.

Skotmark Loga er krónan og fullveldið. Hvorutveggja verði að farga til að hægt sé að innleiða sæluríkið ESB-Ísland. Í því skyni eru komin ný þingmannsefni í Reykjavík og Kraganum sem sérhæfa sig að hallmæla samfélaginu sem fóstraði þau.

Tilboð Loga og Samfylkingar til kjósenda er að sjá ömurleika í hverju landshorni og fyllast vanmetakennd yfir öllu sem íslenskt er. Logi veit af flokksreynslu að þegar hópur fólks fyllist sjálfsfyrirlitningu og ístöðuleysi er búið í haginn fyrir hreinsanir. Markmið formannsins er að ná völdum í haust yfir þjóð á vonarvöl sem örvæntir um framtíðina. Eilíf sæla sem hjálenda Evrópusambandsins er kosningaloforð Samfylkingar-Loga. 

Við hin sem munum vel samfélagstilraunir vinstristjórnarinnar kjörtímabilið 2009-2013 vitum fyrir víst sannindin í eftirfarandi slagorði: Betra Ísland án Samfylkingar.


mbl.is Misrétti, ójöfnuður og því miður fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Það hlýtur að vera samflokksmaður hans sem skrifar þessa grein

På tide å gå inn i EU – VG

Þar sem fyrir utan venjulegu rökin að "fá að koma að borði ákvörðunartöku" þá er bætt við að Noregur væri betur í stakk búin að takst á við netárásir ef þau væru í ESB!

Grímur Kjartansson, 14.3.2021 kl. 09:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband