Biden afskrifar ekki þjóðhyggju Trump

Klerkastjórnin í Íran er komin í náðina hjá Biden-stjórninni en Sádí-Arabía í ónáð. Þessu var öfugt farið hjá Trump. Pútín í Rússlandi verður tekinn fastari tökum en áður, segir Biden og amerískir hermenn verða áfram í Þýskalandi. Trump ætlaði að kalla þá alla heim.

Lítið segir af afstöðu Biden til áforma Erdogan í Tyrklandi að auka áhrif sín fyrir botni Miðjarðarhafs, sem að einhverju marki var í samvinnu við Sádí-Arabíu.

Trumpismi er þó ekki alveg útdauður í Biden-stjórninni hvað utanríkismál varðar. Tímaritið Foreign Affairs vekur athygli á að hagsmunir bandarískra verkamanna verði í forgrunni nýrrar utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Áður en Trump kom til skjalanna var framgangur fjármálafyrirtækja efst á lista. 


mbl.is Batt enda á stuðninginn við stríðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Allt í bið á vesturvígstöðunum en hvað með Kína? heimsstefnan ekki flött út svona fyrstu skrefin eða hvað?

Helga Kristjánsdóttir, 5.2.2021 kl. 08:43

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

 Hann segir eitt.  Hann mun gera annað.

En...

Hvað finnst þér um þetta: https://time.com/5936036/secret-2020-election-campaign/

Þetta er speisaðasti texti sem ég hef rambað framá lengi.  Þeir viðurkenna allt.  Bara svona.

Ásgrímur Hartmannsson, 5.2.2021 kl. 17:14

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað skyldi Biden hugsa núna þegar Persarnir eru búnir að sexfalda skilvindubatterí sín sem þeir nota til að augða úran í bombur sem á að skjóta á Ísrael?

Varla hugsar hann að þetta skipti engu máli geopólitískt. Ég held að það sé áríðandi að fylgjast vel með hreyfingum i Israel. Það getur nefnilega brotist út þarna alvörustríð fyrirvaralítið. Ísraelar geta bara ekki flotið sofandi að feigðarósi meðan klerkabrjálæðingarnir í Íran brugga þeim banaráð. Og verði þarna stríð verður NorðurKórea varla látin afskiptalaus

Halldór Jónsson, 5.2.2021 kl. 18:11

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ásgrimur,meinarðu hvað mér finnst,? Ég er ekki skýr kýr,eða snýst,edda ekki um kú? þá sem nytin er dottin úr; kylfa ræður kasti,og allt gengur vel fyrir ríki heims-fréttir byrjaðar....

Helga Kristjánsdóttir, 5.2.2021 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband