Fylgni og orsök er sitthvað

Fylgni milli tveggja breytna, t.d. bólusetningar og dauðsfalla, þýðir ekki að orsakasamhengi sé þar á milli. Meint orsök þarf að valda meintum afleiðingunum til að um orsakasamband sé að ræða.

Ís selst betur á góðviðrisdögum en í rigningu. Það þýðir ekki að aukin íssala valdi góðviðri (en sólskin er aftur orsakaþáttur íssölu).

Svo við gerumst heimspekileg: líf orsakar dauða í þeim skilningi að enginn deyr án lífs. Náum við háum aldri endum við líklega á hjúkrunarheimili. Þar deyjum við, - með eða án bólusetningar.

 


mbl.is Sjö andlát tilkynnt í kjölfar bólusetningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Já flestir skilja þetta en til hvers að tilkynna þessi andlát til Lyfjastofnunnar sem hugsanlegar aukaverkanir?

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 14.1.2021 kl. 16:20

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Andlátin eru tilkynnt vegna þess að það er grunur um að orsakatengsl séu til staðar. Í Noregi hafa þegar verið tilkynnt 23 dauðsföll í kjölfar bólusetningar. Í 13 tilfellum er talið að bólusetningin hafi átt þátt í þeim, en 10 tilfelli á enn eftir að komast að niðurstöðu um. https://www.vg.no/nyheter/innenriks/i/dlvXGz/har-undersoekt-13-doedsfall-vanlige-bivirkninger-kan-ha-bidratt-til-doedsfall-hos-de-svakeste?fbclid=IwAR0IlaJagYO-WmdPKk8wMi0qWPJlLkNn0QwB69jZHtQSysbWvwEUf6Q6xzU

Þorsteinn Siglaugsson, 14.1.2021 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband