Trump vinnur sinn stærsta sigur í ósigri

Í 4 ár, allt frá kjöri 2016, var Trump úthúðaður sem algjörlega ómarktækur. Flestir fjölmiðlar og sameinuð hjörð frjálslyndra og vinstrimanna klappaði nótt sem nýtan dag þann stein að orð forsetans væru lygar út í eitt og að engu hafandi.

Allt breyttist þetta í einni svipan eftir kosningarnar 3. nóvember síðast liðinn. Þá varð samhljómur um að orð Trump væru gulls ígildi. Ef hann aðeins segði einu setningu, ,,ég viðurkenni ósigur", myndi blasa við björt veröld, fögur og ný.

Heimsbyggðin bíður með öndina í hálsinum eftir því að meitla orð meistarans í stein.

Mikill er máttur orðsins - og orðið var hjá Trump.

 


mbl.is Viðurkennir ósigur kjósi kjörmenn Biden
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Þetta er líka rangt eftri honum haft eins og allt sem kemur frá MBL og RUV um Trump. Hann sagði bara að kjörmennirnir mundu ákveða hver yrði forseti, sem á raunar ekki að koma neinum á óvart því það stndur í stjórnaskránni.

Guðmundur Jónsson, 27.11.2020 kl. 12:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband