Trump-Ísland

Af íslenskum fjölmiðlum að dæma eru forsetakosningarnar í Bandaríkjunum innanríkismál á Íslandi. Ekki það að fjölmiðlar víða um heim fylgist ekki náið með talningu atkvæða en hér á Fróni er borið í bakkafullan lækninn.

Trump er helsta skýringin á elsku íslenskra fjölmiðla á bandarískum stjórnmálum. Allur þorri fjölmiðlanna hér heima telur sitjandi forseta rót alls ills í heiminum og taka þar með sömu afstöðu og frjálslyndir fjölmiðlar í Bandaríkjunum sjálfum.

Nú er það ekki svo að pólitísk álitamál á Íslandi séu þau sömu og Bandaríkjunum. Landið í vestri er heimsveldi, Ísland er örríki.

Möguleg skýring á fyrirferð Trump í íslenskri umræðu er að pólitíska kerfið á Ísland er enn í leit að jafnvægi eftir hrunið þegar glókollur sigraði 2016. Einhverjir óttuðust að Trump-pólitík héldi innreið sína í örríkið.

En aldrei var hætta á því. Trump-Ísland er ímyndun vinstrimanna og fjölmiðla.

 


mbl.is Hvar stöndum við núna?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Uppsprettan er nú ekki öll frá fjölmiðlunum. Jón Gnarr hélt uppi svipuðum fjölmiðlasirkus og Trump til að halda sér í sviðsljósinu og þó Twitter hafi ekki verið komið í almenna notkun á þeim tíma þá var RUV mjög duglegt að flytja fréttir af daglegum athöfnum Jóns Gnarr

Grímur Kjartansson, 6.11.2020 kl. 13:13

2 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Já, Grímur, ætli Gnarrinn hafi ekki verið íslenska frumútgáfan af Trump? Sýndi hve máttur hroka, hleypidóma og hálfvitaháttar er mikill á tíma samfélagsmiðla.

Páll Vilhjálmsson, 6.11.2020 kl. 13:17

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Þjóðarleiðtogi eins og Erdogan er viðkvæm sál inn við beinið. Hann óttast ekki stríð né vopnuð átök. Herinn sér um drápin en hann óttast persónulegar móðganir Trumps eins og öll hégómleg lítilmenni. Auk þess er Trump óútreiknanlegur. Um leið og hinn fatlaði Biden er tekin við mun Erdogan og Hamas öðlast fyrri kjark. Þá mun allt verða eins og það var áður. Meinlaus forseti og stríð.

Trump eða aðrir forsetar bandaríkjanna eiga ekki að vera góðir og útreiknanlegir gæjar. Það er  misskilningur sjálfsmiðaðs fólks á Íslandi að líta á Trump sem hverja aðra neytendavöru, góða eða vonda eftir atvikum. Trump er ekki persónulegur forseti einstakra Íslendinga sem virðast halda að sólinn, stjörnurnar og Trump snúist um sig prívat og persónulega.

Jú, það fyrirfinnst málefnaleg gagnrýni á Trump. 

Benedikt Halldórsson, 6.11.2020 kl. 16:18

4 Smámynd: Benedikt Halldórsson

"Mér finnst Trump versti forseti í sögu bandaríkjanna" segja matgæðingar eftir að hafa smakkað á hinum ólystuga Trump. 

Benedikt Halldórsson, 6.11.2020 kl. 16:52

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Trump? Hann er ekki ætur,enda ekkert lamb að leika við góði.Hann er karlmenni eins og Spartakus heitinn; og berst gegn svindli og lygi sem er að verða alþjóðlegt vandamál.  

Helga Kristjánsdóttir, 6.11.2020 kl. 17:36

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Í pólitík skal það vera,eða hvernig upplifðum við það? Sérstaklega eftir að flokkar gáta reitt sig á stuðning útlendra.

Helga Kristjánsdóttir, 7.11.2020 kl. 05:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband