Helga Björg er dæmdur árásarmaður, ekki Vigdís

Helga Björg skrifstofustjóri Dags borgarstjóra er dæmd fyrir að lítilsvirða undirmann sinn og haga sér eins og yfirmaður í hringleikahúsi.

Vigdís Hauksdóttir kom hvergi nærri þegar Helga Björg hamaðist þannig á undirmanni sínum að úr varð dómsmál þar sem Helga Björg var dæmd og Reykjavíkurborg greiddi skaðabætur.

Helga Björg er embættismaður sem talar eins og pólitíkus: ,,Það er skaðlegt að kjörnir fulltrúar þurfi ítrekað að verjast árásum borgarfulltrúans á mig og annað starfsfólk borgarinnar í stað þess að geta einbeitt sér að því að vinna að góðum málum í þágu borgarbúa, eins og þau eru kjörin til."

Helga Björg skrifaði færslu fyrr í sumar til að vekja athygli á sjálfri sér líkt og stjórnmálamönnum er tamt.

,,Neyðarviðbragð" Helgu núna sýnir enn og aftur að hvorki eru henni mannleg samskipti ýkja töm og enn síður að hún hafi tileinkað sér siðu og háttu embættismanna.

Helga Björg er á ábyrgð Dags borgarstjóra. 


mbl.is Færsla Helgu Bjargar „neyðarviðbragð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

En svona tæknilega er hægt að núa baki í einn aðila án þess að snúa baki í alla aðra fundargesti á „fundi með fjarfundarbúnaði“  „borgarfulltrúinn snýr í mig baki“ 

Grímur Kjartansson, 16.8.2020 kl. 09:14

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Eiga ráðnir embættismenn borgarinnar ekki að vera hlutlausir og þjóna öllum kjörnum fulltrúum jafnt?  Að öðrum kosti að halda sig til hlés og sinna bara sínum pappírum?

Kolbrún Hilmars, 16.8.2020 kl. 12:27

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Þegar embættismaður telur sig vera æðri kjörnum fulltrúa er embættisvæðingin komin á hættustig. Þegar í ofanálag sami embættismaður hefur verið dæmdur brotlegur í starfi, er málið enn alvarlegra!

Gunnar Heiðarsson, 16.8.2020 kl. 19:32

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Þett er hinn nýi tími vinstrimennskunnar. Aldrei á minni alllöngu ævi minnist ég annars eins og þessa að embættismenn rífi kjaft við kjörna yfirmenn sína.Þvílíkt fyrirbrigði er  þetta vinstra fólk sem lætur þetta viðgangast með velvild.

Halldór Jónsson, 17.8.2020 kl. 10:08

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Og þó?.Gleymdi Sverrir Hermannsson því ekki að hann var ekki lengur þingmaður og kallaði Finn Ingólfsson "vaxtaflónið"? Var enda rekinn fyrir vikið.

Halldór Jónsson, 17.8.2020 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband