Obama: kveikjum í heiminum og allt verður betra

Barack Hussein Obama Bandaríkjaforseti 2009-2017 segir þrem árum síðar að óeirðir og íkveikjur gefi von um réttlátara samfélag.

Átta ár með Obama í Hvíta húsinu breyttu engu um réttlæti í fyrirheitna landinu.

En sviðin jörð bætir, kætir og vekur von..

Hugmyndafræði frjálslyndra vinstrimanna í hnotskurn.


mbl.is Gætu orðið vendipunktur í bandarískri sögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Obama er einmitt að gagnrýna ofbeldis- og óeirðaseggina. Það stendur í fréttinni. Lastu hana ekki áður en þú fórst að leggja út af henni?

Þorsteinn Siglaugsson, 1.6.2020 kl. 22:18

2 Smámynd: Flosi Eiríksson

Þú ert nú að gera óeðlilegar kröfur ef þú heldur að Páll lesi það sem hann leggur út af eða predikar um :)

Flosi Eiríksson, 1.6.2020 kl. 23:05

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Það er lymskulegur undirtónn í ummælum Obama. Enginn forseti í sögu BNA hefur gefið samþykki sitt fyrir meira sprengjuregni á önnur lönd en Obama. Aldrei í sögu BNA hefur hervald þessa sambandsríkis drepið fleiri en undir stjórn Obama.

 Gagnrýni hans á ofbeldi hljómar sem þunnur þrettándi öllum hugsandi mönnum. Dæmigerður demókrati og hugsjónageld drusla, hvernig sem á það er litið.

 Tækifærissinni andskotans. Hugsjónagelt viðriðni.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 1.6.2020 kl. 23:23

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þarf ekki að skoða einhverjar tölur í þessu sambandi? Gaf Obama samþykki sitt fyrir sprengjuregninu á Norður-Vietnam, sem var meira en allt sprenguregn BNA í Seinni heimsstyrjöldinni?  Og var það Obama, sem gaf samþykki sitt fyrir notkun tveggja kjarnorkusprengna í því stríði?  

Ómar Ragnarsson, 2.6.2020 kl. 09:24

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Í þessum pistli er lagt út af færslu Obama á Facebook um núverandi ástand,en ekki hverju hann ber ábyrgð á fyrir tugum ára.

Helga Kristjánsdóttir, 2.6.2020 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband