Allir græða á verkfalli Eflingar

Verkfall Eflingar eykur félagsauð. Fólk þarf að finna börnum sínum samastað, vinir og ættingjar hjálpa til. Verkfallið gerir fólk meðvitaðra um neyslu þegar þarf sjálft að farga heimilissorpinu. 

Ónæmiskerfi samfélagsins styrkist við áreitni sósíalistanna í Eflingu. Sósíalísk hrollvekja er nær en margan grunar. Verkfallið er áminning um að Venesúela-Ísland er ekki fjarlægur möguleiki.

Og nú kemur á daginn að digrir verkfallssjóðir greiða hærri bætur en nemur launataxta.

Verkfall Eflingar ætti að standa sem lengst, launþegum og íbúum höfuðborgarinnar til hagsældar.


mbl.is Fær meira í verkfalli en fyrir vinnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband