Lífskjör eða sósíalísk verkföll og einkavæðing

Lífskjarasamningar frá síðasta ári eru í boði fyrir starfsmenn ríkis og bæja. Undir forystu sósíalistanna í Eflingu efna opinberir starfsmenn til ófriðar og herja á skattfé almennings.

Það er samdráttur í þjóðarbúskapnum sem þýðir lægri skatttekjur ríkis og sveitarfélaga. Yrði gengið að kröfum sósíalistanna þyrfti að framleiða innistæðulausar krónur - búa til verðbólgu.

Herskáir sósíalistar eru ávísun að eymd og volæði, í gömlu Sovétríkjunum og Venesúela samtímans.

Tangarhald sósíalista á verkalýðsfélögum er semja við ríki og sveitarfélög kallar á endurskoðun opinbers reksturs. Með einkavæðingu yrðu launakjör opinberra starfsmenna næmari á stöðu efnahagslífsins hverju sinni. Án aga veruleikans fá sósíalistar frítt spil til að gera það sem þeir kunna best - að efna til ófriðar.

Verkföll búa ekki til verðmæti heldur tortíma þeim. Pólitísk verkföll sósíalista ganga skrefi lengra; þau eyðileggja samfélagið.


mbl.is Verkfall BSRB gæti hafist 9. mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alfreð Dan Þórarinsson

Ég er þeirra skoðurnnar að þetta starfsfólk ríkis og bæja ætti að skilja það að við sem vinnum á hinum almenna vinnumarkaði og fyrirtækin sem við vinnum hjá höfum ekki efni á að láta hækka skattana okkar meira en eins að þið gerið ykkur grein fyrir þá eruð þið í vinnu hjá okkur og egið ekkert meira skilið en við.

Alfreð Dan Þórarinsson, 15.2.2020 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband