Verkföll flýta fyrir einkavæðingu; agi í stað lausungar

Rekstur hins opinbera, sveitarfélaga og ríkis, er þegar orðinn alltof stór. Forsendubrestur er orðinn á milli þjónustunnar sem almenningur bæði borgar og nýtur. Sósíalísk verkalýðsfélög eru ábyrg fyrir forsendubrestinum enda nota þau verkfallsvopnið í pólitískum tilgangi.

Skólahald hér á landi er að stærstum hluta á vegum hins opinbera. Sveitarfélög sjá um rekstur fram að framhaldsskólum. Jafnaðarhugsunin fór úr grunnskólanum þegar sveitarfélag tóku yfir. Illa rekin sveitarfélög skila lélegu skólastarfi. Börnin líða fyrir.

Einkavæðing skólastarfs, ásamt tilheyrandi skattalækkunum, færði almenningi meira vald yfir menntun barna sinna og gerði herskáum verkalýðsfélögum erfiðara fyrir að taka börn í gíslingu.

Ekki er hægt að búa við að sjálfumglaðir sósíalistatrúðar herji á lífskjör almennings með því að efna til ófriðar á vinnumarkaði. Einkarekstur fer í þrot standi hann sig ekki, opinber rekstur í ógöngum hækkar skattaálögur. Tímabært er að taka óábyrgu vítisvélina úr sambandi og láta markaðinn um agavandamálið.


mbl.is Ekki vör við verkfallsbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ég tel að það væri allt í lagi að koma á útboððskerfi tengt leikskólum.

Ef að X mikill fjöldi leikskólakennaraa myndu bjóða í rekstur  leikskóla í 4 ár;

fyrir að vinna X marga tíma á dag/ mánuði;

hvað myndu þeir vilja fá mikið?

Tilboðinu yrði síðan skilað í lokuðu umslagi.

=Þá skapaðist ákveðið JAFNVÆGI á milli framboðs/eftirspurnar eftir fólki

og raungetu.

Jón Þórhallsson, 7.2.2020 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband