Jón Valur

Jón Valur Jensson var mælikvarði á samtímann. Þegar nafn hans heyrðist títt í umræðunni vissi það á að andstæðingar hans töldu sig standa höllum fæti.

Jón Valur var maður margra skoðana sem þó mynduðu heild og gerðu manninn að samfélagslegu vörumerki.

Samfélagið er fátækari að Jóni Val gengnum.

Hvíl í friði, Jón Valur.


mbl.is Andlát: Jón Valur Jensson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Blessuð sé minning hans.

Helga Kristjánsdóttir, 7.1.2020 kl. 23:17

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Jón Valur var heill í sinni trú og óþreytandi baráttumaður. Hvíli hann í friði.

Ragnhildur Kolka, 8.1.2020 kl. 00:05

3 Smámynd: Theódór Norðkvist

Blessuð sé minning Jóns Vals. Mér var brugðið við að sjá tengilinn á frétt Mbl á Facebook. Enn ein harkalega áminningin um að við vitum aldrei hvenær okkar síðasta stund á þessari jörð rennur upp.

Ég kynntist Jóni Vali ágætlega í baráttusamtökunum Icesave-nauðungarsamningunum, Þjóðarheiðri. Ég minnist þess tíma nú með gleði, en jafnframt sorg yfir því að við munum ekki lengur njóta krafta eins af ötulustu baráttumönnum fyrir hinum ýmsu réttlætismálum og ekki síst kristni í landinu, sem er grundvöllurinn að öllu réttlæti.

Theódór Norðkvist, 8.1.2020 kl. 00:46

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hann var mikill "prinsipp"maður og stóð vel við skoðanir sínar svo var hann afskaplega rökfastur og ætlaðist hann til að menn rökstyddu það sem þeir voru að halda fram og ef þeir gátu það ekki, þá var það sem þeir héldu fram afskaplega lítils virði og lét hann þá skoðun óspart í ljós þannig að menn þyrftu ekki að vera í neinum vafa við hvað hann átti.það verður mikill missir af honum á Moggablogginu og ekki má gleyma þeirri hreinskilni sem einkenndi hann og hans málflutning......

Jóhann Elíasson, 8.1.2020 kl. 01:23

5 Smámynd: Gunnlaugur I.

Blessuð sé minning Jóns Vals Jenssonar. (JVJ)

Gunnlaugur I., 8.1.2020 kl. 02:35

6 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Blessuð sé minning hans. 

Jón Valur sagði það sem honum fannst og var alltaf samkvæmur sjálfum sér. 

Benedikt Halldórsson, 8.1.2020 kl. 02:53

7 Smámynd: Daníel Sigurðsson

Já, farinn er vandaður maður, Jón Valur.  það verður sjónarsviftir af honum á þessu bloggi. Ég kynntist honum fyrst af nokkurri alvöru í gegnum ættfræðiþjónustu hans. Síðar mun betur í baráttu Samstöðu þjóðar, Nei við Icesave , en þar var hann mjög ötull liðsmaður.  Það jók einnig á kunnugskapinn að við vorum nlágrannar í Vestuevænum. Blessuð sé minning hans.

Daníel Sigurðsson, 8.1.2020 kl. 15:14

8 Smámynd: Daníel Sigurðsson

kunningskapur átti þetta að vera en ekki kunnugskapur.

Daníel Sigurðsson, 8.1.2020 kl. 15:19

9 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

Mun alltaf minnast hans fyrst og fremst fyrir baráttuna gegn fósturdrápum. Sigl heill Jón Valur.

Guðmundur Böðvarsson, 8.1.2020 kl. 18:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband