Íran og Ríki íslams - þjóðríki og himnaríki

Ríki íslams var trúarhugmynd um nýtt kalífadæmi súnní-múslíma. Í fáein misseri 2014-2015 var Ríki íslams til í landamærahéruðum Sýrlands og Íraks. Þar fyrir utan er Ríki íslams neðanjarðarsamtök með sellur hér og þar en ekkert land til að rækta og verja.

Íran er aftur þjóðríki með 80 milljónir íbúa, að stærstum hluta Persa sem játa shíta-útgáfu múslímatrúar.

Leiðtogar Írans geta ekki farið neðanjarðar, þeir missa ríkið fari þeir í felur. Leiðtogar Ríkis íslam gátu sent fylgismönnum sínum hljóðupptökur úr felum; klerkarnir í Teheran verða að sitja stjórnarskrifstofur og vera sýnilegir.

Vesturlönd gátu illa beitt sér gegn Ríki íslams, nema þessa fáeinu mánuði sem ríki þeirra átti landfræðilega tilvist. Íran er aftur skotmark, sitjandi önd. 

Hefðbundið stríð á milli Bandaríkjanna og Íran er ólíklegt. Bandaríkin láta sér ekki innrás til hugar koma, lærðu það af Írak-stríðinu. Íran hefur enga burði til að herja á Bandaríkin nema með hryðjuverkárásum.

Skærur og staðbundin leiðindi verða eftirmál aftöku Soleimani. Klerkarnir í Teheran vilja þjóðríkið umfram himnaríkið.

 


mbl.is Spurningin bara hvenær stríð brjótist út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband