Rússland og vestræn alþjóðahyggja

Frjálslyndir og vinstrimenn á vesturlöndum óttast Rússa meira en efni standa til. Hillary Clinton segir Rússa ráða niðurstöðu forsetakosninga í Bandaríkjunum, þegar Trump sigraði, og séu ráðandi afl í bresku stjórnmálalífi. Til Íslands kemur Nató-foringi og segir Rússa ógna vestrænum hagsmunum á norðurslóðum.

Raunsæismenn í alþjóðastjórnmálum, t.d. Harvard-prófessorinn Stephen M. Walt, hafna Rússagrýlunni með gildum rökum. Rússland er með efnahagskerfi á stærð við Ítalíu, telja ekki nema 140 milljónir (og fer fækkandi) og stunda ekki lengur útflutning á and-borgaralegri hugmyndafræði líkt og á tímum Sovétríkjanna.

Engu að síður er Rússagrýlan raunveruleg. Hvað veldur?

Rússar ánetjuðust ekki vestrænni alþjóðahyggju sem var sigrandi hugmyndafræði eftir kalda stríðið. Þeir fundu rússneskar lausnir (Pútín) á rússneskum vandamálum og höfnuðu vestrænni alþjóðahyggju.

Frjálslyndir og vinstrimenn eru helstu boðberar alþjóðahyggjunnar: Bush yngri, Clinton-hjónin, Obama og Blair í Bretlandi. Hugmyndafræðin steytti á skeri í Írak, Afganistan, Sýrlandi, Líbýu og Úkraínu. Brexit-kosningarnar í Bretlandi og sigur Trump, hvorttveggja árið 2016, voru mótmæli gegn alþjóðahyggju og hliðarafurðum eins og trú á manngert veður, ESB og fjölmenningu.

Og hverjir skyldu bera ábyrgð á óförum frjálslyndra og vinstrimanna? Nú, auðvitað Rússar, Pútín sérstaklega.

 


mbl.is „Óskiljanlegt og til skammar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband