Miðaldra hvítur karl og fylgi XD

Miðaldra hvítur karl fékk kjör ritara í Sjálfstæðisflokknum. Líklega sökum þess að vinstrisinnaðir unglingar og ESB-sinnar ráða ferðinni í forystu flokksins.

Sjálfstæðisflokkurinn stendur ekki undir nafni, er ekki flokkur þeirra sem telja fullveldið meginmál stjórnmálanna.

Á meðan flokkurinn sækir á mið vinstrimanna og ESB-sinna verður eftirtekjan rýr. Burtséð frá hvítum miðaldra körlum.


mbl.is Segir fylgi Sjálfstæðisflokksins óásættanlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Jón segir fylgi flokksins óásættanlegt. Hann kemur hinsvegar hvergi að því í orðum sínum hvað hugsanlega valdi. Þessi blinda er ein af höfuðorsökum þess, hve Sjálfstæðisflokkurinn minn hefur dalað í fylgi. Höfuðpaurarnir sjá hvergi ryk á flibba sínum, en skortir á sama tíma ekki hortugheitin og grobbið sér til handa. Vansinn hljóti jú að liggja annars staðar en hjá þeim sjálfum!

 Þvílík kokhreysti og gagnrýnislaust sjálfshól eykur ekki fylgi nokkurs stjórnmálaflokks. Það mun brenna sem í víti í næstu kosningum. Bíðið þið bara, tríó gott!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 15.9.2019 kl. 02:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband