Hrun í stuðningi við EES-samninginn

Árið 2004 voru 72 prósent þjóðarinnar sannfærð um að EES-samningurinn væri jákvæður fyrir Ísland, samkvæmt könnun Gallup. Í nýrri könnun utanríkisráðuneytisins mælist jákvæðni gagnvart EES aðeins 55 prósent.

EES-samningurinn heggur jafnt og þétt í fullveldi þjóðarinnar. Þriðji orkupakkinn færir Evrópusambandinu forræði yfir raforkumálum okkar, verði pakkinn samþykktur á alþingi.

Aðeins einn þingflokkur á alþingi, Miðflokkurinn, stendur í vegi fyrir óafturkræfum skaða sem EES-samningurinn veldur á náttúru landsins sem verður undirlögð virkjunaráformum, verði 3. orkupakkinn samþykktur.

Miðflokkurinn fer fyrir sístækkandi kjósendahópi sem telur EES-samninginn til óþurftar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Ekki er Birgir Ármannss að sópa fylgimu að D-listanum?

Halldór Jónsson, 27.6.2019 kl. 08:29

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ja hérna. Þetta eru fréttir til næsta tómabæjar þingmanna xD.

Það er eins og að Utanríkisráðuneytið hafi verið eiga við PDF-skránna, því allt letur lítur út eins og að skýrslan sé dregin upp úr salerni og síðan þurrkuð á miðstöðvarofni.

Ráðuneytið hefur keyrt upprunalegu PDF-skránna frá Maskínu í gegnum barnaleikfangið "Foxit PhantomPDF Printer" sem er ekki sá PDF-hugbúnaður sem Maskína notar til að búa til PDF.

Allt innihald hefur afbakast í meðförum ráðuneytisins og lítur úr eins og barn hafi límt texta á servéttum á þerripappír og tekið svo Kodak-instamat ljósmynd af verkinu og troðið henni síðan inná síður skýrslunnar. Strax á blaðsíðu 4 hefst eyðileggingin. Skólabarn hefði gert betur.

Guðlaugur Þór hefur kannski verið að líma og klístra?

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 27.6.2019 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband