Hrunið, fullveldið og sagan

Frá hruninu 2008 hafa sex ríkisstjórnir setið stjórnarráðið. Fimm stjórnmálaflokkar náðu manni inn á alþingi 2007. Tíu árum síðar buðu 11 flokkar fram lista í þingkosningum og átta náðu fulltrúum inn á þing.

Samhliða fjölgun stjórnmálaflokka verður örari endurnýjun þingliðs og yngra fólk fær ábyrgðastöður. Þingið eftir kosningarnar árið 2016 var það yngsta í sögu lýðveldisins.

Pólitískur óstöðugleiki einkennir Ísland síðasta áratug. Ef allt hefði verið með felldu hefðu kosningar farið fram 2011, 2015 og aftur í sumar. En við kusum til þings árin 2009, 2013, 2015 og 2017.

Eftir hamfarir af mannavöldum, s.s. stríð, efnahagshrun og samfélagsátök, er algengt að stjórnkerfi þjóðríkja taki stakkaskiptum. Hrunið 2008 var ekki séríslenskt og pólitískur óstöðugleiki ekki bundinn við Ísland. Sigur Trump og enn frekar Brexit eru afleiðingar af fjármálakreppunni 2008.

Hrunið bjó til fyrstu hreinu vinstristjórn lýðveldissögunnar, Jóhönnustjórnina 2009-2013. Fullveldismál, þ.e. ESB-umsóknin, felldi þá stjórn með brauki og bramli.

Sitjandi ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur braut í blað í lýðsveldissögunni með því að tveir flokkar sem ekki höfðu starfað saman frá 1946 fóru í eina sæng, Sjálfstæðisflokkur annars vegar og hins vegar Vinstri grænir/Alþýðubandalag/Sósíalistaflokkur.

Vonir stóðu til að stöðugleiki yrði meiri með ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Þær hafa ekki gengið eftir nema að hluta. Þriðji orkupakkinn sýnir ótvírætt að fullveldismál, sem klufu nýsköpunarstjórnina 1946, eru enn eldfimasta deilumál íslenskra stjórnmála.

Með mörgum flokkum og óreyndu ungu fólki erum við ekkert sérstaklega vel undir það búin að leysa verkefnið sem stofnað var til á Þingvöllum 17. júní 1944.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ungt fólk sem runnið hefur á færibandinu frá leikskóla til háskóla er ekki sérlega vel fallið til að taka stórar ákvarðanir fyrir aðra. Það er áhrifagjarnt og auðtrúa, skortir þá reynslu sem höggin í lífinu skapa. Krafan um nýja sýn, nýtt fólk er ekki að skila þeim árangri sem vænst var. Í staðinn höfum við fengið krakka grey sem enn eru blautir bakvið eyrun. Og kaos á þingi.

Ragnhildur Kolka, 10.6.2019 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband