Þórdís með bakland í Viðreisn og Samfó

Þórdís iðnaðarráðherra fær stuðning frá yfirlýstum ESB-flokkum, Viðreisn og Samfylkingu, við að innleiða þriðja orkupakka Evrópusambandsins.

En, óvart, Þórdís er ekki fulltrúi Viðreisnar/Samfylkingar í stjórnarráðinu heldur Sjálfstæðisflokksins.

Og sjálfstæðismenn vilja ekki þriðja orkupakkann.

Hvar liggur trúnaður Þórdísar?

 


mbl.is Þórdís: Einkavæðing ekki á dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Kannski var ekki pláss fyrir hana á framboðslistum Viðreisnar/Samfylkingar og hún neyðst til að bjóða sig fram hjá Sjálfstæðisflokknum.

Ragnhildur Kolka, 5.3.2019 kl. 15:37

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Tók hún kannski við af Þorgerði Katrínu að Samfóvæða Sjálfstæðismenn?

Tómas Ibsen Halldórsson, 5.3.2019 kl. 15:48

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Trúnaður hennar er ekki við grasrót flokksins og ekki við Landsfund hans, svo mikið er víst!

Ætlar Sigríður Andersen líka að bregðast í þessu máli?

Og hvað með unga ritarann, Áslaugu þá Örnu? surprised

Jón Valur Jensson, 5.3.2019 kl. 19:05

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

En það er ekkert nýtt, að Logi Einarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir taki Evrópusambandið og þreifingar þess fram yfir hagsmuni Íslands. Og enn á ný leggja voldugir "Sjálfstæðismenn" slíkum landeyðum lið. 

    • Veit eg sá er víst ljótr

    • vandinn um Ísland,

    • ef málin eru tvenn til,

    • að tendra það, sem verr stendr!

      (Loftur ríki.)

    Jón Valur Jensson, 5.3.2019 kl. 19:17

    5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

     Normenn vildu ekkert með okkur hafa eftir "bankahrunið" en núna vilja þeir vera bestir vinir okkar, þvílíkir hræsnarar!!

    Sigurður I B Guðmundsson, 5.3.2019 kl. 19:34

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband