Bjargað frá múslímafjölskyldu - sinni eigin

18 ára stúlku er bjargað frá sinni eigin fjölskyldu, sem er múslímsk til heimilis í Sádí-Arabíu. Að sögn vill stúlkan trúfrelsi, afþakka íslam, en það er dauðasök í heimalandi hennar.

Múslímaríki viðurkenna ekki mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Mannréttindi múslímaríkja eru Kairó-yfirlýsingin, sem kveður á um trúarveldi karla en konur skulu lúta.

Algengt er að múslímskum stúlkum sé ráðstafað við fermingaraldur til að giftast manni sem faðirinn hefur velþóknun á. Á vesturlöndum kallast þetta barnaníð.

Trúarmenning múslíma er ósamrýmanleg vestrænum siðagildum. 

Á meðan vesturlönd horfast ekki í augu við þessa bláköldu staðreynd ræður ferðinni viðvarandi tvískinnungur gagnvart múslímaríkjum og trúarmenningu þeirra. Heitið á þessum tvískinnungi er fjölmenning, sem gerir ráð fyrir að gagnólíkir siðir þrífist hlið við hlið í einu samfélagi. Svo er ekki. Siðir þurfa landamæri, annars vaða uppi ósiðirnir. 


mbl.is Qunun komin til Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Nú ætlar hin íslenska ríkisstjórn sem að þú styður Páll 

að leyfa byggingu á nýrri múslima-mosku í Skógarhlíðinni; eða hvað?

---------------------------------------------------------------------

Hefur þú kjark til að mæla með flokkum sem að vilja hafna

öllu  múslimatengdu hér á landi:

https://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2227287/

Jón Þórhallsson, 13.1.2019 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband