Segðu það með skrauti

Fólk tjáir sig með ólíkum hætti. Í blómaauglýsingum á síðustu öld kom fyrir setningin ,,segðu það með blómi." Hógvær tjáning með afskornum liljum vallarins er aftur ekki allra.

Ljósasýningar á aðventunni eru hvorki hófstilltar né vitnisburður um náungakærleik. Sá sem ofhleður hús sín og híbýli með skrauti kallar á athygli meðborgara sinna. Líklega finnst viðkomandi hann vanmetinn í samfélaginu, gæti verið kjósandi Samfylkingar.

Nágrannar litla mannsins með skrautið gætu reynt að strjúka honum meðhárs og fært honum blóm. Fordæmið sýndi að tilfinningar þarf ekki að auglýsa með blikkandi ljósum og sírenuvæli.

 


mbl.is Engar reglur um jólaberserki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Þá væru nú menn komnir í vond mál ef þeir færu að færa nágrananum blómvendi og strjúka honum réttsælis. Það gæti reynst snúið með réttleikan hjá þeim burstaklipptu þar sem hárið rís upp í loftið. Því yrði svarað með stefnum og þá væri allt komið í háaloft.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 13.12.2018 kl. 07:47

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ekki komast allir í ræðustól Alþingis að auglýsa góðmennsku sína.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 13.12.2018 kl. 09:35

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Jæja, það minnir mig á að ég þarf að fara út og láta jólaljós mitt skína. 

Benedikt Halldórsson, 13.12.2018 kl. 11:15

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Hóflega skreytt húsakynni og lóðir á aðventunni og yfir jólahátíðina gleðja og veita birtu og yl í svartasta skammdeginu. Öllu má þó ofgera og tíu þúsund perur eru nátturulega ekkert annað en áreiti þeim sem það þykir "töff".

 Að strjúka nágranna, hvort heldur rétt eða rangsælis, tja fyrir utan þessa með burstaklippingunacool gæti reynst skeinuhætt, því þá erum við komin út í líkamlega áreytni. Legg til að við látum nágrannana alveg vera, sama hve mörgum perum þeir skarta þetta árið. Lifið heil og sæl.

 Góðar stundie, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 14.12.2018 kl. 01:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband