Allt ofbeldi er kynbundið

Ef karlmaður lemur annan karl er það ofbeldi. Ef kona leggur karl í einelti kallast það ofbeldi. Í báðum tilvikum er ofbeldið kynbundið. Eins og allt ofbeldi, því kynin eru aðeins tvö.

,,Kynbundið" ofbeldi er merkingarleysa. Við gætum alveg eins talað um ,,tvífætlingaofbeldi".

Merkingarleysan er höfð í frammi til að draga fjöður yfir þá staðreynd að karlaofbeldi er eitt en kvennaofbeldi annað. Árásarhneigð kynjanna birtist með ólíkum hætti. Almennt eru karlar beinskeyttir en konur brögðóttar. Allir eldri en tvævetra vita þetta.   


mbl.is „Kynbundið ofbeldi nær en margur heldur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Páll,

En hverju skiptir það?  Staðreyndin er sú að "karlmenn" beita konur ofbeldi, bæði líkamlegu og andlegu.  Ég set "karlmenn" í gæsalappir, því þetta eru auðvitað ekkert annað en aumingjar.  Karlmenn, sem eru ekki aumingjar, beita ekki konur eða börn ofbeldi.  Svo einfalt er það!  Þessi aumingjavæðing karlmanna, sem telja sig ekki menn nema þeir geti barið konur eins og harðfisk, er mikilvæg hjá ákveðnum hópi vangetumanna.  Þetta er "karlarnir" í krapinu, sem geta ekki svo þeir berja frá sér og halda sig stórmenni, en eru svo ósköp litlir inn í sér að þeir þurfa ofbeldi til að finnast þeir hafa tilgang.  Ég vorkenndi þessum mönnum og þeir þurfa hjálp.

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 26.11.2018 kl. 01:46

2 Smámynd: Helga Dögg Sverrisdóttir

Arnór Baldvinsson held þú hefði gott af að lesa þessa grein. Konur beita karlmenn ofbeldi en heiður síns vegna segja þeir ekki frá því. Synd að konur hafi náð að koma því inn hjá þjóðinni að það séu eingöngu karlar sem beita ofbeldi. Rannsóknir sýna að konur beita oftar ofbeldi en karlar. Rannsóknir sýna líka að konur beita börn sín oftar ofbeldi en karlar. Held að þjóðinni veitti ekki af að viðurkenna að ofbeldi viðgengst hjá báðum kynjum.   https://www.frettabladid.is/skodun/konur-eiga-a-vera-konum-bestar?fbclid=IwAR3GcI-XUUuFqvEhoFI1qhIUzapPm2-GlY0EGpSzWoS4gman6N8IeXPijKU

,,Rann­sóknir síðustu ára­tuga hafa af­hjúpað alls konar of­beldi kvenna, gagn- og sam­kyn­hneigðra, gegn stúlku­börnum, ung­lings­stúlkum og full­vaxta kyn­systrum. "

Helga Dögg Sverrisdóttir, 26.11.2018 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband