Sósíalistapíratar og trúarpólitík

Pólitískir jaðarhópar eins og píratar og sósíalistar rækta með sér ,,kult"-einkenni þar sem útvaldir eru settir á stall og óbreyttir sýna undirgefni. Valdið sem þeir útvöldu hafa yfir þeim þýlyndu er réttlætt með helgislepju um að sumir séu vitsmunlega á æðra plani en aðrir.

Pólitík jaðarhópanna er skyldari trú en stjórnmálum. Trúin gengur út á að hópurinn sé merkilegri en samfélagið almennt og yfirleitt. ,,Við" og ,,þeir" aðskilnaði er viðhaldið með ótta við ,,óvinina" sem sitja um trúarsannfæringu hópsins. Til að aga hópinn er reglulega efnt til grunsemda að þessi og hinn safnaðarmeðlimur sé ekki nógu hreinn, gangi jafnvel erinda ,,óvinarins."

Í söfnuðum af þessu tagi eru bithagar fyrir óæskilegri hvatir mannskepnunnar eins og drottnunargirni, tvöfeldni, tortryggni og undirlægjuhátt. Háleit markmið um óspillta pírataríkið eða jafnaðarríki sósíalista felur um stund ljóta safnaðarlífið. En aðeins um stund.

 

 


mbl.is Einelti innan Pírata veldur úrsögnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það er alltaf vont þegar inn í almannahreyfingar treður sér fólk sem á þar ekkert erindi og hefur það markmið eitt að spilla fyrir. Píratar eru ekki þeir einu sem hafa mátt þola slík skemmdarverk.

Guðmundur Ásgeirsson, 5.11.2018 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband