Hundakofakenning Baldurs

Baldur Þórhallsson prófessor býr til kenningu um að smáríki þurfi skjól. Kenningin mælist til þess að smáríki finni sér hundakofa á lóð stórríkis og láti sér vel líka.

Gallinn við kenningu Baldurs er að þeir sem hugsa smátt verða litlir.

Gildir bæði um einstaklinga og þjóðir.


mbl.is Smáríki þurfa skjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Fyrir hverjum þurfa smáríkin skjól? hákörlum eins og ESB sem allt vilja gleypa?

Hrossabrestur, 3.10.2018 kl. 18:11

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Tek undir þetta Páll. Ég sé ekki heldur að við þurfum að dreifa okkur yfir mörg ríki. Stöndum bara í lappirnar þá höfum við virðingu annarra.

Valdimar Samúelsson, 3.10.2018 kl. 19:15

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Baldur getur látið sem við eigum allt undir hrærigrautar kenningunni; "en ennþá brennur mér í muna",stefnu mót við samfylkinguna.- hennar tími kom og fór án skjóls til handa þeim rændu. Stefnum úr EES.

Helga Kristjánsdóttir, 3.10.2018 kl. 21:24

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Síðan við gengum Noregi á hönd og vorum flutt hreppa flutningum yfir til Dana hefur engin utan ESB reynt að leggja Ísland undir sig. Kaninn var að mestu í einangrunarbúðum á Suðurnesjum og þó að herstöðvaaandstæðingar gengju einu sinni á ári til Keflavíkur til að mótmæla veru þeirra hér þá voru þessir göngutúrar meira svona félagslegar hygge-samkomur heldur en raunveruleg mótmæli. 

Við plumum okkur ágætlega sjálf en þurfum að kunna að velja okkur vini.

Ragnhildur Kolka, 3.10.2018 kl. 23:28

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Það getur sennilega verið ágætt að vera hundur, ef húsbóndinn er góður. Hendir í mann beini af og til og fóðrar reglulega og hreyfir. Þeir sem telja það nægilega lífsfyllingu, verandi menn, eiga virkilega um sárt að binda. 

 Varla hægt að hugsa sér betra orð en "hundakofakenning" um þetta sjálfsniðurlægjandi hugarfar fullveldisafsalssinna. Prófessora, sem annara.

 Þakka góðan pistil.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 4.10.2018 kl. 02:10

6 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

Margir Bretar horfðu til Íslands þegar þeir kusu Brexit. Hefndin er sæt..

Guðmundur Böðvarsson, 4.10.2018 kl. 06:46

7 Smámynd: Helgi Rúnar Jónsson

Íslendingar hafa alltaf leitað skjóls í pilsfaldi USA eins og hlandblautur rakki. Létum þá moka í okkur pening eftir stríð þannig að ekki var sómi af, vorum eins og verstu betlarar og geltum og gjömmum þegar húsbóndinn geltir og gerum eins og hann segir, eins og t.d þegar við studdum innrás í Írak 2003 í þeirri veiku von að þeir haldi eftir smá flugsveit á Keflavíkur flugvelli til að geta blóðmjólkaðir.

Helgi Rúnar Jónsson, 5.10.2018 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband