Rógur, sannleikur og atkvæði

Ástæðan fyrir því að margir trúðu ásökunum um að Brett Kavanaugh hefði gerst sekur um kynferðisbrot þegar hann var 17 ára er sú að þeir vilja hann ekki í embætti hæstaréttardómara. 

Meint fórnarlamb hafði hvorki útskýrt nákvæmlega ætlað brot né kringumstæður, nema með almennu orðalagi, en engu að síður vildu margir trúa. Við yfirvegaðar aðstæður, til dæmis fyrir dómstólum, er ætlast til að sakarefni sé vel reifað og ekki síst að sá ásakaði fái tækifæri til málsvarnar. Dómstóll götunnar er aftur allt annað en yfirvegaður. Þar gildir æsingurinn og trú á fyrirframgefna niðurstöðu.

Rógurinn er aðferð til að safna atkvæðum og fylgi án tillits til sannleikans. Síðasta mæling á fylgi stóru flokkanna í Bandaríkjunum, Repúblíkana og Demókrata, bendir til að rógberarnir eigi nokkurt starf óunnið. Repúblíkanar eru sum sé í forystu.


mbl.is „Þetta er einfaldlega rógburður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þriðji hópurinn og sá sem fer sífellt stækkandi er óháðir. Þeir ráða í raun hver sigrar í kosningum í BNA.

kavannaugh á við ramman reip að draga. Tilnefndur af Trump er hann sjálfkrafa úthrópaður, sem stjórnarskrársinni sömuleiðis því ef eitthvað er eitur í beinum demókrata þá er það stjórnarskráin (kannast einhver hér við þetta?). Verði hann settur í embætti munu stjórnarskrárinnar verða í meirihluta. Það er óbærileg tilhugsun fyrir fólk sem vill engar hömlur á athafnagleði sína. Þess vegna hafa demókratar telft fram tveimur konum sem ásaka hann fyrir kynferðislegt ofbeldi. Hvorug með trúverðuga sögu og því er nú sú þriðja á leiðinni - með “pottþéttar” sögu. Við bíðum eftir fréttunum. 

Stjórnmálin í BNA eru með því ógeðfelldasta sem um getur og #metoo byltingin bætir þar ekki um.

Ragnhildur Kolka, 25.9.2018 kl. 11:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband