Trump er grískur guđ Evrópu

Ilíonskviđa Hómers segir frá umsátri Akkea (Grikkja) um Trójuborg. Í tíu ára stríđi veitti ýmsum betur, Akkeum eđa Tróverjum, og fór ţađ eftir atfylgi guđanna. Seifur Kronusson var ćđstur guđa og munađi mest um málafylgju hans. Donald J. Trump er Seifur Evrópu samtímans.

Ţjóđverjar kvarta undan ţráhyggju Trump gagnvart sér og skipta út flóttamannastefnu til ađ ţóknast yfirvaldinu. Á Nató-fundi keppast börn Evrópu ađ gera Trump Kronussyni til geđs. Myndrćn framsetning á yfirburđum Trump er ađ leiđtogi ESB, Jean Claude-Juncker, birtist draugfullur og ósjálfbjarga á Nató-fundinum. Meiri andstćđur er ekki hćgt ađ hugsa sér. Ógangfćrt drukkiđ gamalmenni á móti tápmiklum grískum guđ.  

Í Bretlandi situr mćrin May á kné forsetans og biđur um leyfi til framhaldslífs sem forsćtisráđherra. Trump hallar sér glókollinum Boris Johnson. Borgarstjóri Lundúna ćtlađi ađ gera guđagrikk međ útblásinni dúkkumynd. Borgarstjórinn gerir Breta ađ börnum, segir dálkahöfundur Telegraph.

Eftir ađ hafa lagt Evrópu ađ fótum sér heldur Trump Kronusson til Rússíá og hittir ţar fyrir Pútín. Í samlíkingu viđ grísku gođafrćđina er Pútín Hera eiginkona Seifs. Hera fer sínu fram, viđurkennir Seifur í Ilíonskviđu.


mbl.is Segir Brexit gera út um verslunarsamning
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Nú hlýtur grikklandseyjafrćđingurinn Egill ađ fá hiksta. 

Ragnhildur Kolka, 13.7.2018 kl. 09:49

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband