Saga class Píratar

Viðreisn og Píratar eru sama pólitíkin, segir oddviti Pírata í Reykjavík, Dóra Björt Guðjónsdóttir, og kennir báða flokkana við ,,frjálslyndi".

Viðreisn er að stofni til efnafólk úr Sjálfstæðisflokknum, vel tengt á æðstu stöðum og í efsta tekjuhópi samfélagsins. Svo nokkrir séu nefndir af handahófi: Þorsteinn Pálsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Benedikt Jóhannesson, Þorsteinn Víglundsson og Sveinn Andri Sveinsson.

Viðreisn var stofnuð til að Ísland yrði ESB-ríki. Í Brussel er mikið af peningum, einkum fyrir sérfræðinga og vel tengda embættismenn. Þangað flýgur maður á Saga class-miðum, sem aðrir borga en maður fær frípunktana á eigin reikning.

Píratar töluðu til skamms tíma fyrir borgaralaunum. En þeir eru orðnir vanir þægilegri innivinnu á góðum launum og vilja ,,uppgradera" sig á Saga class. Það heitir frjálslyndi.


mbl.is Ýmislegt sameini Viðreisn og Pírata
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband