Rússland fær Úkraínu, Ísrael Sýrland

Áður en Benjam­in Net­anya­hu forsætisráðherra Ísraels fyrirskipaði árás á Írani í Sýrlandi skaust hann til Moskvu að hitta Pútín. Net­anya­hu skreytti sig með Georgsslaufunni við heimsóknina, segir í Spiegel, en Rússum er slaufan kær. Hún er tákn um sigur Rússa yfir Þjóðverjum í seinna stríði.

Georgsslaufan er líka tákn rússneskra uppreisnarmanna í Úkraínu, sem njóta stuðnings Moskvu til að koma í veg fyrir að Úkraína verði Nató-ríki. Net­anya­hu er læs á pólitík. Þótt Ísrael eigi engan hlut í Úkraínudeilunni á ísraelski forsætisráðherrann það sem Pútín skiptir máli, sem er aðgangur að Trump Bandaríkjaforseta.

Uppsögn Trump á samkomulagi um kjarnorkuafvopnun Íran gerbreytir pólitískri stöðu mála í miðausturlöndum. Í augum Bandaríkjanna er Íran orðið Norður-Kórea miðausturlanda. Bandaríkin einsetja sér að knésetja Íran, líkt og Norður-Kóreu.

Íran ætlaði sér stóra hluti í heimshlutanum með stuðningi við Assad Sýrlandsforseta. Sýrland er stökkpallur inn í Ísrael og lykilatriði fyrir gyðingaríkið að Íran fái ekki aðstöðu í Sýrlandi. Linnulausar hótanir klerkanna um gereyðingu Ísraels eru skýr vitnisburður um ætlan þeirra.

Rússar eru bakhjarlar bæði Assad og klerkastjórnarinnar í Teheran. Ástæðan fyrir því að Rússar beittu sér í þágu Assad heitir Úkraína. Ef Bandaríkin fallast á tilslökun gagnvart Rússum í Úkraínu er möguleiki að Pútín gefi eftir í Sýrlandi. Á þetta veðjar Benjam­in Net­anya­hu.

Úkraína og Sýrland eru bæði ónýt ríki vegna innanlandsófriðar. Þau verða skiptimynt í stórveldaslag. Norður-Sýrland verður áhrifasvæði Tyrkja, sem er Nató-ríki en í bandalagi við Rússa. Suður-Sýrland verður afvopnað í þágu Ísraels. Hvort pláss verður fyrir Assad er undir hælinn lagt.

Úkraínu verður skipt upp í sjálfsstjórnarhéruð samkvæmt Minsk-samkomulaginu er felur í sér að Austur-Úkraína verður rússneskt áhrifasvæði en vesturhlutinn hallar sér að Evrópusambandinu.

Í dramatík alþjóðastjórnmála þarf einhvern óþokka. Obama Bandaríkjaforseti gerði Pútín að illmenninu. Trump færir hlutverkið, fyrst yfir á Norður-Kóreu en núna á klerkana í Íran. Þeir eru meira en viljugir að taka að sér hlutverkið, sýndu það með því að kveikja í bandaríska fánanum í þinghúsinu í Teheran. 

Tákn eru öflug vopn í stjórnmálum, hvort heldur Georgsslaufan í Moskvu eða brenndur Bandaríkjafáni í Íran.


mbl.is „Íranir fóru yfir strikið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Áhugaverð pæling, en lofar ekki góðu fyrir Kúrda.

Ragnhildur Kolka, 11.5.2018 kl. 10:42

2 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Eins og fyrri daginn verða Kúrdar líklega gerðir að afgangsstærð. 

Páll Vilhjálmsson, 11.5.2018 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband