Siðlausir Píratar - hvenær segir Halldóra af sér?

Það er ekki í lagi að gera fjölskylduharmleik að pólitískum leðjuslag. Það er ekki í lagi einkalíf fólks fari í beina útsendingu frá alþingi. Það er ekki í lagi að þingmenn gaspri um viðkvæm trúnaðarmál í fjölmiðlum.

Halldóra Mogensen þingmaður Pírata og formaður velferðarnefndar er í valdastöðu. Hún misnotar opinbert vald til að klekkja á pólitískum andstæðingum. Misnotkunin felst í því að Halldóra notar aðgengi sitt að persónulegum málefnum hjóna í illvígri forræðisdeilu til að ata embættismenn auri og krefjast afsagnar ráðherra.

Halldóra og þingflokkur Pírata eiga sér engar málsbætur fyrir kaldrifjaða og miskunnarlausa aðför að einkalífi fólks í því skyni að ná fram pólitískum ávinningi.

Hvort segir Halldóra af sér þingmennsku fyrir eða eftir hádegi? 


mbl.is Telur réttara að Halldóra segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Úr því þú spyrð; líklega hvorugt!  En nú hefur umboðsmaður Alþingis fengið  mál "sakborningsins" til umfjöllunar og ráðherra málaflokksins kallar eftir óháðri skoðun, líklega einhverrar nefndar sem þarf að stofna sérstaklega í þeim tilgangi.  Skattgreiðendur borga svo brúsann - og síðan líka skaðabótakröfurnar sem kunna að myndast að lokum.

Kolbrún Hilmars, 30.4.2018 kl. 15:41

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Held að það sé best að tjá sig ekki umleðjuslaginn fyrr en eftir óháðu rannsóknina.

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.4.2018 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband