Ríki íslams og ríki rétttrúnađarins

Hermenn ríkis íslams eyđilögđu styttur og fornminjar í miđausturlöndum. Alţjóđasamfélagiđ fordćmdi verknađinn sem villimennsku. Í Bandaríkjunum er ţađ ekki talin villimennska ađ eyđileggja styttur og minnismerki um borgarastríđiđ 1861-1865.

Ríki íslams réttlćtir eyđilegginguna međ trúarrökum. Ţeir sem afmá sögulegar minjar í Bandaríkjunum fćra ţau rök fyrir máli sínu ađ stytturnar og minnismerkin séu móđgun viđ pólitíska sannfćringu samtímans.

Styttur og minnismerki eru dauđir hlutir. Eina merkingin sem ţessir hlutir hafa er sú sem viđ gefum ţeim. Stytta verđur trúartákn eđa pólitísk eftir ţví hvernig hún er túlkuđ. Og túlkunin ţróast og breytist í tímans rás. Orđrćđa fortíđar er lykillinn ađ skilningi á samtímanum. Ef fortíđin er strikuđ út verđur samtíminn merkingarleysa.

Sögulegar minjar eru sameign samfélaga, jafnvel mannkynsins alls, samanber heimsminjaskrá Unesco. Margar minjar eru trúarlegar og ađrar pólitískar og urđu til á tímum ţrćlahalds, kvenfyrirlitningar og annars ójafnađar.

En viđ eyđileggjum ekki sögulegar minjar nema viđ séum í helgreipum trúarofstćkis eđa pólitísks rétttrúnađar. Viđ látum ekki ţröngsýni rćna okkur fortíđinni. Ţađ vćri villimennska.


mbl.is Vilja halda í stytturnar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Pólitíski rétttrúnađurinn lyktar stćkt af trúarofstćki. Og meira og meira af íslömsku trúarofstćki. Nú síđast krafan um engar styttur eđa myndverk sem minna á Borgarastyrjöldina. Ţá er veriđ ađ gera ţví skóna ađ verkin séu trúarlegs eđlis en ekki áminning um sögulega atburđarás. Vandamáliđ er ađ ţegar slíkar hreinsanir fara af stađ er engin leiđ ađ sjá fyrir hvar ţćr enda. 

Pólitísk villimennsku er engu betri en trúarleg villimennska.

Ragnhildur Kolka, 19.8.2017 kl. 09:57

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Eftir ađ hafa rennt stuttlega yfir heimsfréttirnar sé ég ađ til viđbótar viđ styttur Suđurríkjahermanna hafa nú bćst á útrýmingarlistann styttur af: George Washington, Abe Lincoln, Kristófer Kólumbus og kvennaflagarans Bill Clinton. Ţegar bylgjan fćrist til Íslands má gera ráđ fyrir ađ styttur af Einar Ben og Jón Sigurđsson verđi ofarlega á listanum. Ekki vegna ţrćlahalds heldur glćsileika og ađ leyfa sér ađ rísa upp fyrir almúgann.

Ragnhildur Kolka, 19.8.2017 kl. 10:51

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Hakakrossinn var fjarlćgđur af leikvanginum íNurnberg. Eimskip er úiđ ađ taka niđur ćgishjálminn af byggingunni sinni í Pósthússtrćti. Kórónan er enn á Alţingishúsinu. Á hún ađ fara?

Halldór Jónsson, 19.8.2017 kl. 18:17

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband