Múslímar, vísindi og trúarrasismi

Þróunarkenningin ásamt eðlisfræði eru forsenda skilnings á náttúrunni og skynveruleikanum. Án þróunarkenningarinnar er ekki hægt að ræða þróun mannsins. Valkosturinn er einhver útgáfa af trúarrasisma sem kennir að guð hafi skapað manninn.

Tyrkland er talið vestrænasta ríkið í múslímaheiminum. Fyrir hundrað árum reyndi landsfaðir lýðveldisins Tyrklands, Kemal Atatürk, að uppræta trúarbábiljurnar sem héldu aftur af nútímavæðingu landsins.

Fréttir að tyrknesk stjórnvöld undir forsetaræði Erdogans banni kennslu þróunarkenningarinnar sýnir að trúarrasismi lifir góðu lífi í menningarheimi múslíma.


mbl.is Hætta að kenna þróunarkenninguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Páll

Ég skil ekki þetta hjá þér með, að ".. banni kennslu þróunarkenningarinnar sýnir að trúarrasismi lifir góðu lífi í menningarheimi múslíma."
Því að margir Kristnir menn víða um heim vilja einnig losa sig við þessa þróunarkenningu, og hafa fundið að henni ýmislegt til foráttu, eða m.a. þar sem að hann Darwin karlinn minnist ekkert á Guð sem skapara í þessari þróunarkenningu.

KV.    

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 25.6.2017 kl. 11:28

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þróunarkenningin er rétt að því leiti að allt líf þróast eitthvað smávegis eins og hæð, styrkleiki, gáfur, húðlitur og slíkt.

En það var ekki þannig að maðurinn sem tegund MEÐ ÖLL SÍN FULLKOMNU SKILNINGARVIT hafi þróast út frá pöddum til apa og svo  til manna,              bara fyrir röð tilviljanakenndra stökkbreytinga og náttúru-úrvals: 

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2196562/

Jón Þórhallsson, 25.6.2017 kl. 15:02

3 identicon

Sæll Jón

Eftir að rússneskir vísindamenn fundu líkamsleifar af fleiri milljón ára gamalli konu, eru menn á því að þróunarkenningin gangi ekki upp og/eða þróunarkenningin sé bata orðin vandamál.
KV.

"Either way, the evolution theory is in trouble."

Russian Scientists Claim Woman Discovered In A Perfect Marble Casket Is 800 Million Years Old!


Woman Discovered In A Perfect Marble Casket In Russia Is 800 Million Years Old

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 25.6.2017 kl. 15:30

4 Smámynd: Steinarr Kr.

Þú ert allur í ekkifréttunum Þorsteinn!

Steinarr Kr. , 25.6.2017 kl. 17:16

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Er það "trúarrasismi" að Guð hafi skapað manninn?

Þarftu að vera svona andkristinn, Páll? Hvað sannaði þér allan þinn sekúlarisma? Það hefur alltaf og verður alltaf kristin trú, að Guð skapaði manninn.

Margt skrifarðu vel,* en getur alveg farið út af sporinu eins og aðrir. Þú ert ekki enn orðinn óskeikull, Páll!

* T.d. í þessum nýjustu pistlum þínum:

    Jón Valur Jensson, 27.6.2017 kl. 15:00

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband