Stórar hugmyndir og sterkir leiðtogar

Evrópusambandið er stór hugmynd í tilvistarvanda, skrifar George Soros. Loftslagsvá af mannavöldum er önnur stór hugmynd í tilvistarvanda. Jafnvel varkár maður eins og Joseph E. Stiglitz splæsir lífshættu loftslagsváarinnar við aðra hugmynd í hættu, sem er alþjóðhagkerfið.

Soros nefnir sterka leiðtoga aðalandstæðinga Evrópuhugmyndarinnar og þeir eru allir forsetar; Pútín í Rússlandi, Erdogan í Tyrklandi, el-Sisi í Egyptalandi og Trump í Bandaríkjunum. Stiglitz nefnir aðeins einn, en sá er líklega sterkastur af þeim sterku - Trump.

Tilvistarvandi stórra hugmynda er ekki bundinn við vesturlönd. Um 20 prósent jarðarbúa, 1,6 milljarður múslíma, burðast með hugmyndina um að spámaður á Arabíuskaga hafi á ármiðöldum fengið uppskrift af jarðlífinu frá guði. Múslímar eiga enga sterka leiðtoga og vandræði þeirra eru því meiri, samanber ástandið í miðausturlöndum.

Í nettengdum heimi, þar sem ódæði í Kabúl er stórfrétt í Reykjavík fáeinum augnablikum síðar, er eftirspurn eftir stórum hugmyndum sem útskýra heimsástandið. Fólk vill skilning á tilverunni og stórar hugmyndir ramma einstaka atburði í heildstæða mynd.

En það er líka eftirspurn eftir sterkum leiðtogum sem líklegir eru til að breyta ófremdarástandi í eitthvað bærilegra.

Sameiginlegt sterku leiðtogunum, sem nefndir eru hér að ofan, er að þeir standa ekki fyrir stórar hugmyndir. Pútín og Erdogan gæta rússneskra og tyrkneskra hagsmuna. El-Sisi valdar innanlandsástandið í Egyptalandi. Jafnvel Trump er aðeins með takmarkaða hugmynd: make America great again.

Stórar hugmyndir þurfa spámann. Án Jesú væri kristni neðanmálsgrein í sífelldum ófriði ættbálka fyrir botni Miðjarðarhafs. Lenín og Stalín gerðu kommúnisma að heimshreyfingu. Litli maðurinn með frímerkjaskeggið braut Evrópu undir eina hugmyndafræði fyrir miðja síðustu öld.

Við sitjum uppi með stórar hugmyndir í lífshættu, sterka leiðtoga en engan spámann. Ráðlegging Voltaire er nærtæk, um að í viðsjálum heimi ættum við að rækta garðinn okkar. En minnumst þess að Voltaire veitti ráðið í aðdraganda frönsku byltingarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband