Vg og Framsókn betri kostur Sjálfstæðisflokks

Miðjustjórn Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokks er betri kostur en hægristjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Þrjár ástæður eru fyrir því.

Miðjustjórnin yrði með báða vængi pólitíska litrófsins innanborðs. Vinstri grænir eru ásamt Sjálfstæðisflokknum sigurvegarar kosninganna og eiga sterkt pólitískt tilkall til stjórnarsetu.

Í þriðja og síðasta lagi er það sem mest er um vert: miðjustjórnin skapar jafnvægi milli hagsmuna landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins sem hægristjórnin gerir alls ekki.


mbl.is Framsókn og VG vilja viðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Tryggir festu og óbreytt ástand í öllum kerfum  sjávarútvegs- og landbúnaðar. Engar breytingar. Óbreytt hagsmunaghæsla. Klofinn þingflokkur VG um Elliðaár og  Straumsvík.Og Framsókn með  SDG í andstöðu við allt og alla, mest sína eigin flokksmenn,    

Eiður Svanberg Guðnason, 2.1.2017 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband