Sigurður Ingi fer með rangt mál

Í hádegisfréttum RÚV, auðvitað, segir Sigurður Ingi að þingflokkur Framsóknarflokksins hafi ákveðið í apríl að lýsa vantrausti á Sigmund Davíð formann og forsætisráðherra. Þetta er rangt.

Vigdís Hauksdóttir er hluti af þingflokknum og ekki kannast hún við að neitt slíkt hafi verið rætt á vettvangi þingflokksins.

En auðvitað svíkur Sigurður Ingi ekki nokkurn mann. Nema kannski sjálfan sig.


mbl.is Brigsl, svik og óheiðarleiki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þetta er allt tilbúningur öfundsjúkra og auðvita með RÚV í slagtogi

Valdimar Samúelsson, 25.9.2016 kl. 16:18

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

 Ég kann auðvita ekkert á framsóknar pólitík, en tel þó að heppilegra hefði verið að beita Sigurði Inga fyrir herfi austur í flóa en að hafa hann á grasbeit við alþinshúsið.  

Hrólfur Þ Hraundal, 25.9.2016 kl. 16:40

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

En með skemmtilegri konum á alþyngi nú síðustu ár er Vigdís Hauksdóttir, það er missir að henni.  

Hrólfur Þ Hraundal, 25.9.2016 kl. 16:44

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Vigdís sagði eftir þingflokksfund Framsóknar í kjölfar ferðar Sigmundar upp á Bessastaði:

„Þegar þing­flokks­fundur var hald­inn eftir fund Sig­mundar á Bessa­stöðum gaf ég út að ég mundi styðja þá til­lögu að flokk­arnir end­ur­nýj­uðu umboð­ið,” segir Vig­dís í sam­tali við Kjarn­ann. „Ég hefði talið það lang­besta kost­inn að rjúfa þing og efna til kosn­inga, á þeim for­sendum hver staðan er og þeirrar háværu kröfu. Það hefði verið eðli­leg­ast í stöð­unn­i.” 

Þannig að það er augljóst að hún og Sigmundur voru í minnihluta í þingflokki framsóknar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.9.2016 kl. 17:08

5 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Samkvæmt því sem Magnús Helgi upplýsir hér að ofan þá fer Vigdís augljóslega með rangt mál.

Jósef Smári Ásmundsson, 25.9.2016 kl. 17:43

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Er ekki orðið morgunljóst að sitjandi forsætisráðherra hljóti að vera lykilmaður í RÚV-samsærinu gegn fyrrverandi forsætisráðherra?

Guðmundur Ásgeirsson, 25.9.2016 kl. 18:19

7 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Góður, Guðmundur.

Páll Vilhjálmsson, 25.9.2016 kl. 19:31

8 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Páll. Hvað sagði Höskuldur Þórhallsson?

Veit nokkur blaðamaður eða fjölmiðlamaður um að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson neitaði því ekki á fundinum fyrir norðan, þegar Höskuldur Þórhallsson upplýsti að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fór umboðslaus frá þingflokknum, á þingrofsbeiðnifund á Bessastaði?

Hvað finnst fólki eiginlega um svona einræðisvinnubrögð?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 25.9.2016 kl. 23:40

9 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Síðuhöfundur hefur sjálfur rangt eftir Sigurði Inga, samkvæmt því sem sagt var í fréttum RUV í kvöld.  Þar er haft eftir honum að "nærri hafi legið" að þingflokkurinn lýsti yfir vantrausti á Sigmund Davíð, sem er auðvitað ekki það sama og að lýst hafi verið yfir vantraustinu.  

Ómar Ragnarsson, 26.9.2016 kl. 00:55

10 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Ómar, í frétt RÚV segir:

„Á þessum örlagaríka þriðjudegi, þá varð trúnaðarbrestur milli formannsins og þingflokksins og þingflokkurinn hafði í hyggju að lýsa yfir vantrausti á formanninn og fela mér og þingflokksformanninum að leita leiða til að halda ríkisstjórnarsamstarfinu áfram,“ segir Sigurður Ingi í samtali við fréttastofu.

Þarna segir Sigurður Ingi að þingflokkurinn ,,hafði í hyggju" sem gefur til kynna að umræður hafi farið fram í þingflokknum og þar hafi vilji til að setja Sigmund Davíð af legið fyrir. En engu slíku er til að dreifa. Þingflokkurinn lýsti engum vilja. 

Páll Vilhjálmsson, 26.9.2016 kl. 05:56

11 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Jæja ágæti höfundur. Þá er komið að því að lúta í gras og játa fimbulfambið.

Kemur ekki ljós að þinn heimildarmaður  í stór RÚV/Sigurður/formannsmálinu fór með rangt mál. Sú hinn saman var að viðurkenna hún sat ekki fundinn sem Sigurður Ingi vitnar í.

Hér bregðast greinar.....

Sigfús Ómar Höskuldsson, 26.9.2016 kl. 08:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband