Baugur á Íslandi segir eitt, Baugur í Bretlandi annað

Það skiptir verulegu máli hve stutt er á milli stjórnkerfisins og viðskiptalífsins á Íslandi, segir framkvæmdastjóri Baugs í Bretlandi og þakkar stuttum boðleiðum árangurinn í útrásinni. Ekki kemur þetta heim og saman við málflutning Baugs á Íslandi sem sakar stjórnvöld um að leggja stein í götu fyrirtækisins.
mbl.is Baugur kjölfestufjárfestir í 30 erlendum fyrirtækjum sem velta 1300 milljörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Það er eitt stjórnkerfi og annað stjórnvöld.  Þannig hafa útrásarfyrirtækin líklega góðan aðgang að sendiráðum og viðskiptaskrifstofum, þó þeim sé ekki alltaf tekið fagnandi í forsætisráðuneytinu.

Marinó G. Njálsson, 6.3.2007 kl. 21:47

2 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Jú, það er rétt. Málflutningur Baugsmanna hefur á hinn bóginn gengið út á að stjórnvöld hafi beitt stjórnkerfinu gegn sér.

Páll Vilhjálmsson, 6.3.2007 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband