Evran er á skilorði stórþjóðanna

Ítalskir stjórnmálamenn formæla evrunni og nú leggur franski fjármálaráðherrann nafn sitt við gangrýni á sameiginlega gjaldmiðil 18 ESB-þjóða af 28.

Evran átti að verða gjaldmiðill sem hentaði öllum. Í raun er enginn ánægður með evruna enda stórspillir hún efnahagskerfum, sbr. jaðarríki ESB sem glíma við lítinn sem engan hagvöxt og hátt atvinnuleysi.

Þegar stórþjóðir eins og Ítalía og Frakkland taka til við að hallmæla evrunni er orðið fátt um varnir fyrir sameiginlegan gjaldmiðil Evrópusambandsins. Nema, auðvitað, á Íslandi þar sem Samfylkingin segir evruna bestu mynt veraldarsögunnar.


mbl.is Kvartar undan styrk evrunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: FORNLEIFUR

Í takt við hina auknu vantrú á €vruna, eykst hrópið í eyðimörk íslenskra ESB-sinna eftir evru. Það heitir Fata morgana á ítölsku, eða á góðri evrópsku: pervers sjón.

FORNLEIFUR, 16.4.2014 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband