Engin þjóðaratkvæðagreiðsla 2009 - pólitísk handjárn

Þjóðin var ekki spurð hvort hún vildi að send yrði umsókn um aðild að Evrópusambandinu sumarið 2009. Samfylkingin þjösnaði þeirri umsókn í gegnum alþingi og forysta VG lagði þingmenn sína í pólitísk handjárn til að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu.

Það er falskur tónn í kröfu Samfylkingar og VG að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um afturköllun ESB-umsóknar fimm árum eftir að hún fór umboðslaus frá alþingi.

Sérstaklega er ámælisvert að þinglið VG hafi í frammi slíka kröfu, - í ljósi þess hvernig um hnútana var búið 16. júlí 2009.


mbl.is Ögmundur hótaði úrsögn 2009
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Í morgun var ég að skoða erlenda netmiðla, og rakst þá á merkilegt orðalag í yfirskrift frá 22-2-2014, á: nationen.no :

Ísland dropper EU-söknaden.

Regeringen på Island vil trekke tilbake söknaden om islandsk EU-medlemskap uten å holde noen ny folkeavstemning om saken.

Það var semsagt látið líta þannig út í fyrirsögninni, að á Íslandi hefði farið fram þjóðaratkvæðagreiðsla árið 2009, um hvort farið skyldi af stað í ESB (EU) aðlögunarviðræður!

Þegar maður sér svona sögufölsun og blekkingar á erlendum netmiðlum, þá ofbýður manni enn meir, öll frekjan og yfirgangurinn sem viðgengst í kringum allt þetta ESB-djöfladansa-seðlabankaræningjadæmi!

Það tekur á taugarnar, að halda einhverskonar siðsamlegri og réttlátri auðmýkt, þegar frekja ESB-valdanna siðlausu er svona áberandi forhert og samviskulaus!

Mér ofbýður gjörsamlega, samviskuleysið forherta, frekjan og takmarkalaus yfirgangurinn, sem viðgengst hjá elítu-heimsveldinu: ESB/USA/AGS!

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.3.2014 kl. 17:14

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þjóðaratkvæðagreiðsla þegar Aðildarsamningur að Sambandinu er kominn uppá borð. Þjóðaratkvæðagreiðslu þar um.

Málflutningur andsinna því vanræðalegri því meir sem buxurnar síga niður á hælanna.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 13.3.2014 kl. 17:55

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ómar. Hvað finnst þér þá um villandi orðalagið á: nationen.no  ?

Þetta snýst um eitthvað annað og meira en einhverjar áróðurs-buxur svokallaðra andstæðinga.

Allir eru ábyrgir fyrir því að réttar upplýsingar ráði för. Ég, þú, og allir aðrir, eru ábyrgir!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.3.2014 kl. 18:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband