Stalín er ekki hér

Árni Páll Árnason formaður Samfylkingar grípur til félaga Stalín til að ná upp í nef sér af hneykslan vegna afturköllunar ESB-umsóknar Samfylkingar og VG. RÚV útvarpar.

Einföld en fábrotin staðreynd sem Árni Páll skilur ekki er eftirfarandi: meirihluti alþingis sendi ESB-umsókn til Brussel sumarið 2009; vorið 2013 var kosinn nýr meirihluti á alþingi sem núna afturkallar umsóknina.

Rétt er hjá formanni Samfylkingar að í Sovétríkjunum var annar háttur hafður á en sá sem kenndur er við þingræði.

En, sem sagt, einhver ætti að tilkynna Árna Páli að Stalín er ekki hér.


mbl.is Hafa ekki umboð til að ákveða þetta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Aftur á móti virðist Marx vera kominn Alþingi. (Þ.e. Groucho, en ekki Karl.)

Guðmundur Ásgeirsson, 21.2.2014 kl. 21:53

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Meirihlutinn 2009 var í raun ekki meirihluti.  Aðeins með að hóta nýliðum á þingi um stjórnarslit tókst að afla tillögunni nauðsynlegs meirihluta. Það hefur oftsinnis verið staðfest.  Enda ástandið fordæmalaust. Núna hefur þjóðin meira sjálfstraust og þrátt fyrir ömurleika stjórnmálanna þá veljum við fullveldi og sjálfstæði frekar en efnahagslegan stöðugleika í formi styrkja frá Sósialistabandalagi Evrópuþjóða

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 21.2.2014 kl. 22:36

3 Smámynd: Rauða Ljónið

Vigdís Hauksdóttir var höfð að háði og spotti út af Evrópumálum. Hún lagði fram þessa þingsályktunnartillögu: "Alþingi ályktar að fela dómsmála- og mannréttindaráðherra að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram aðlögunar- og viðræðuferli Íslands og Evrópusambandsins. Atkvæðagreiðslan fari fram samhliða kosningu til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010".
Og hverjir sögðu nei ? Það er hér að neðan !
Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Ásta R. Jóhannesdóttir, Baldur Þórhallsson, Birgitta Jónsdóttir, Björgvin G. Sigurðsson, Björn Valur Gíslason, Guðbjartur Hannesson, Guðmundur Steingrímsson, Helgi Hjörvar, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Kristján L. Möller, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús M. Norðdahl, Magnús Orri Schram, Margrét Tryggvadóttir, Mörður Árnason, Ólína Þorvarðardóttir, Róbert Marshall, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Siv Friðleifsdóttir, Skúli Helgason, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Þór Saari, Þráinn Bertelsson, Þuríður Backman, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.
 Þetta lið á listanum hér fyrir ofan sem enn er á þingi ætti auðvitað að segja af sér allt með tölu og fara síðan heim til sín og skammast sín til æviloka.
Kv. Sigurjón Vigfússon

Rauða Ljónið, 22.2.2014 kl. 00:12

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ekki skil ég hvað gaurinn er að meina með að bendla Pútín við Stalín.

En - eftir því sem ég heyri meira í þessum Árna, því meira sannfærist ég um að þar fari vitgrannur maður sem lætur ekki smáatriði eins og staðreyndir þvælast fyri sér.

Ásgrímur Hartmannsson, 22.2.2014 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband