Þekkir Jón Gnarr muninn á mosku og Moskvu?

Jón Gnarr borgarstjóri tók upp þykkjuna fyrir homma og lesbíur þegar þingið í Moskvu samþykkti lög sem bönnuðu áróður fyrir samkynhneigð.

Sami Jón Gnarr veitir múslímum fyrirgreiðslu sem telja samkynhneigð ýta undir barnarán.

Hvar liggur samstaða Jóns Gnarr og samfylkingarmeirihlutans?


mbl.is Jón Gnarr hvass í garð rússneska þingsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: K Zeta

vonandi ertu ekki enskukennari Páll!

K Zeta, 18.7.2013 kl. 23:33

2 Smámynd: Austmann,félagasamtök

K Zeta, hvað ertu eiginlega að bulla? Páll var að vitna í frétt af vef RÚV:

"Múslimaklerkurinn Ahmad Seddeq hjá menningarsetri múslima segir að samkynhneigð ýti undir rán á börnum. ... Spurður um samkynhneigð segir Ahmad að samkynhneigð ýti undir rán á börnum og mansal. "

Austmann,félagasamtök, 18.7.2013 kl. 23:57

3 Smámynd: Þarfagreinir

Það hefur enginn veitt þessum klerki eða félagi hans nokkra 'fyrirgreiðslu'. Hann er yfir Félagi múslima sem er með aðsetur í Ýmishúsinu í Skógarhlíð sem það keypti sjálft og þar þurfti enga lóðaúthlutun. Félagið sem fékk úthlutað lóð undir mosku er Félag múslima á Íslandi, þó það sé nú heldur gildishlaðið og jafnvel vafasamt að kalla það einhverja 'fyrirgreiðslu'.

RÚV er með ágætis samantekt á þessu öllu saman hér: http://www.ruv.is/frett/erum-ekki-wahhabistar

Er ekki lágmark að kynna sér málin áður en maður blammerar fólk? Eða finnst þér þessir múslimar kannski allir bara vera alveg eins hvort eð er?

Þarfagreinir, 19.7.2013 kl. 00:21

4 Smámynd: Þarfagreinir

Menningarsetri múslima ætlaði ég að skrifa, ekki Félagi múslima.

Þarfagreinir, 19.7.2013 kl. 00:22

5 Smámynd: Austmann,félagasamtök

Það ætti að setja bann á komu allra imama til landsins. Allir imamar eru öfgafullir múslímar sem ferðast til Vesturlanda til að prédika hatur í moskum. Þetta þekkist m.a. frá Danmörku og sannast einnig hér með lygum og hatursáróðri Ahmads Seddeq.

Ef honum líkar ekki samkynhneigð þá getur hann bara verið heima hjá sér þar sem aldraðir menn kaupa litlar stelpur af foreldrum þeirra og þaðan af verra. Hvað kallast það?

Talandi um að kasta grjóti úr glerhúsi.

Austmann,félagasamtök, 19.7.2013 kl. 08:37

6 Smámynd: Austmann,félagasamtök

Annars er þetta umburðarleysi gagnvart samkynhneigð einnig hjá kristnum trúboðum sem teljast til bókstafstrúar- og ofsatrúarmanna. Sem heldur ekki hafa fengið sjálfstæða hugsun í vöggugjöf frekar en múslímskir imamar.

Organized religions - Who the hell needs it?

Austmann,félagasamtök, 19.7.2013 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband