Framsókn: ESB-umsókn afturkölluð

Ályktun 32. flokksþings  Framsóknarflokksins um Evrópumál er skýr. Flokkurinn staðfestir það mat sitt að Íslandi sé best borgið utan Evrópusambandsins og að útistandandi ESB-umsókn verði afturkölluð. Þá verði ekki sótt um aðild að nýju án undangenginnar þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ályktunin tekur af öll tvímæli um að aðildarferlinu verði hætt þegar í stað. Að sjálfu leiðir að ekki verði farið í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort eigi að sækja um á ný nema að aðstæður gerbreytist. Draumóramenn úr röðum ESB-sinn telja sumir að hægt verði að bjarga aðildarferlinu með því að fá um það þjóðaratkvæðagreiðslu. Ályktun framsóknarmanna gefur ekki færi á slíkum vendingum.

Það stendur upp á Sjálfstæðisflokkinn að álykta á landsfundi sínum jafn afgerandi gegn ESB-umsókn Samfylkingar og Framsóknarflokkurinn gerði um helgina.


mbl.is Íslandi best borgið utan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband