Umboðsleysi ESB-umsóknar algert

Aðeins einn flokkur á alþingi vill að Ísland gangi í Evrópusambandið og sá flokkur gengur ekki heill til skógar; sumir þingmenn flokksins vilja bara sjá ,,hvað er í boði". Samfylkingin fékk rúm 29 prósent atkvæðanna við síðustu kosningar og mælist nú með um fimmtungs fylgi.

Aðrir stjórnmálaflokkar eru með samþykktir sem ýmist mæla með afturköllun umsóknar, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, eða eru andvígir aðild að ESB, - VG.

Flokkssamþykktir stjórnmálaflokka endurspegla lýðræðislegan vilja félagsmanna. Þegar það liggur fyrir að hvorki síðustu þingkosningar né pólitískar samþykktir stjórnmálaflokka á alþingi veita umboð til ESB-leiðangurs þá liggur í augum uppi að þeim leiðangri er sjálfhætt.

 


mbl.is Tillagan vekur athygli erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

http://eirikurjonsson.is/haegri-graenir-naest-staerstir-konnun/

GB (IP-tala skráð) 18.12.2012 kl. 20:09

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála, það er vonandi að þessari vá verði afstýrt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.12.2012 kl. 21:24

3 identicon

Ég get ekki annað en dáðst að seiglu Jóns Bjarnasonar í þessu ESB máli. Hann byrjar á að kjöldraga velferðarstjórnina, því næst tjargar hann hana og fiðrar áður en hann endanlega rúllar henni upp úr olíu og hveiti. Þetta VG fólk og fyrrverandi VG fólk sem hefur fylgt sinni sannfæringu hvað sem á hefur dunið á skilið endurkjör.

Ég geri mér grein fyrir því að það er töluverður "bias" í skoðanakönnunum Bylgjunnar en tölurnar í könnuninni sem GB linkar á eru all svakalegar. 

Seiken (IP-tala skráð) 18.12.2012 kl. 21:40

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott mál.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.12.2012 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband