Sveitaslúður, syndin og Sjöundarmorðin

Gunnar Gunnarsson gefur undir fótinn þeirri hugmynd í Svartfugli að sveitaslúðrið hafi sakfellt þau Bjarna og Steinunni vegna fráfalls maka þeirra. Vitni eftir vitni er leitt fram í dómsmálinu sem byrjar á því að lýsa sekt þeirra en þegar nánar er að gætt er ekkert kjöt á beinunum, - aðeins endurunninn rógur.

Þegar synd er framin þarf að bæta fyrir hana var uppskrift þess tíma rétttrúnaðar. Kjaftagangurinn á Rauðasandi lagði drögin og yfirvaldið ásamt þjóni kirkjunnar útvegaði sektina með því að þjarma nógu að Bjarna þartil hann játaði. 

Barn þeirra Bjarna og Steinunnar var á framfæri sýslunnar en lög kváðu á um að afkvæmi líflátinna sakamanna skyldu á ábyrgð sýslu en ekki sveitar líkt og annars var með ómaga. Barnið hét Jón og fékk vðurnefnið ,,sýsli".


mbl.is Steinunn á Sjöundá fær legstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kannski ekki kallaður Jón sýsli heldur fremur: Sýslu-Jón. Jón Bjarnason var lengi í vinnumennsku en þó um skeið sjálfstæður bóndi í Krókshúsum á Rauðasandi, hann lést 79 ára 1882 á Grænhóli á Barðaströnd. Sigurbjörg dóttir hans komst yfir nírætt, dó 1940 hjá dóttur sinni og tengdasyni á Hvalllátrum í Útvíkum vestra. Þá voru liðin 135 ár frá því að afi hennar var höggvinn úti í Noregi og amman lést hér í tugthúsi (stjórnarráðshúsinu) áður en böðulsöxin næði til hennar. Sterkir eru stofnar frá Sjöundá.

Ólafur Karlsson (IP-tala skráð) 27.8.2012 kl. 23:35

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þetta eru forvitnilegar upplýsingar. En áttu þau Bjarni og Steinunn svo ekki börn með mökum sínum? Roskinn Strandamaður sem ég þekkti sagðist vera afkomandi Bjarna á Sjöundá og mig minnir að hann hafi talið Bjarna nokkuð kynsælan um Djúp og Strandir.

Árni Gunnarsson, 28.8.2012 kl. 08:59

3 Smámynd: Púkinn

Það er nú ekki rétt að "...að börn Bjarna og Guðrúnar hafi öll látist voveiflega..."  Það er fjöldi afkomenda frá þeim.

Það er hins vegar eitthvað skrýtið að sagt er að viðkomandi hafi fengið "..ártöl og annað hjá deCODE"  deCODE veitir ekki ættfræðiþjónustu af þessu tagi - hefur ekki einu sinni heimild til þess.

Púkinn, 28.8.2012 kl. 12:48

4 identicon

Ég er afkomandi Gísla Bjarnasonar frá Sjöundá, hann var bóndi á Ströndum. Afkomendur hans eru komnir undir 2.000,  afkomendur hafa verið kynsælir.

Þetta eru afkomendur Gísla.

og langa langan mín.

Guðný Gísladóttir
Fædd í Kaldrananessókn, Strand. 5. september 1832
Látin 5. febrúar 1900

systkyni hennar

Jón Gíslason 1827 - 1828
Guðrún Gísladóttir 1829 - 1829
Sigríður Gísladóttir 1831 - 1858
Solveig Gísladóttir 1833 - 1912
Gísli Gíslason 1836
Jón Gíslason 1837 - 1851
Guðrún Gísladóttir 1840 - 1840
Björn Gíslason 1844

Freyja Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 28.8.2012 kl. 18:21

5 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ég er afkomandi bæði Steinunnar og Bjarna og það er ekki stór ætt komin af þeim...enn. Það er ekki rétt hjá Kristni. Við Unnur Laufey Jónsdóttir (Eyja) afkomandi Steinunnar, settum kross á leiði Steinunnar árið 1991 í gamla Hólavallargarð. Þar með jarðsungum við hana og gáfum frið (vonandi).

Áður en við settum þar kross merktan "Steinunn frá Sjöundá" lágu þar bein hennar og mundu elstu menn hjá Kirkjugörðum RVK hvar reiturinn var og þeim skal þakkað!

PS. Auðvitað er það hárrétt með farið hjá Púkanum að Decode hefur ekki þessar upplýsingar, heldur hin snilldarlega Íslendingabók.is

PPS. Ég hef heyrt að Jón hafi verið kallaður bæði "hreppa-Jón" eða "sýslu-Jón"


Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 28.8.2012 kl. 21:56

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

http://www.ruv.is/frett/leidi-steinunnar-fra-sjounda

var í Kastljósi í des 2011

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 30.8.2012 kl. 01:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband