Hagvöxtur í pólitísku svartnætti

Ísland kemur undan kreppu betur en bjartsýnustu þorðu að vona. Merkilegast er þó að endurreisn efnahagslífsins tekst þrátt fyrir pólitískt öngþveiti á alþingi og lömunarveiki stjórnarráðsins. Hver er skýrningin?

Við búum að sterkum innviðum þar sem saman fer einsleitt samfélag, almennt traust á milli einstaklinga og hópa, jafnræði og bjargföst sannfæring að endurreisn á eigin forsendum sé farsælla en að segja sig til sveitar hjá Evrópusambandinu.

Og svo er það auðvitað krónan, bústólpi lýðveldisins. 


mbl.is Hækkar hagvaxtarspá sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var bara á nokkuð góðum grunni að byggja þrátt fyrir allt.

Það er því miður ekki verið að byggja á honum núna.

Bara hægfara niðurrif.

jonasgeir (IP-tala skráð) 30.3.2012 kl. 09:46

2 Smámynd: Kristinn Pétursson

Makríll og loðna eru það sem hefur skapað þennan hagvöxt - óvænt.

Besta ráðið teil að eika hagvöxt er að auka fiskveiðar.  Farðu að kynna þér það mál Páll.

Kristinn Pétursson, 30.3.2012 kl. 10:08

3 identicon

þetta krónublæti þitt páll er að verða fyndið. bíleigendur þurfa nú að borga nær 270 krónur fyrir bensínlítrann. olíuverð í heiminum hefur samt lækkað um yfir 3% á liðnum mánuði.  verðbólgan er vel yfir 6% m.a. vegna gengishraps krónunnar það sem af er ári. gengishraps sem  hefur hækkað matarkörfu almennings töluvert. heldur þú virkilega páll að jón og gunna vestur í bæ telji krónuna vera einhvern "bústólpa" sinn í þessu ástandi. og það sem þú gleymir alltaf í þessu krónuþurgli þínu er að mjög ströng gjaldeyrishöft gilda í landinu, höft sem alla jöfnu ættu að halda gengi krónunnar uppi.

fridrik indridason (IP-tala skráð) 30.3.2012 kl. 14:32

4 identicon

Höft sem alveg örugglega myndu halda uppi gengi krónu, væri nokkur einasta vitglóra í núverandi peningastjórn landsins Friðrik.

jonasgeir (IP-tala skráð) 30.3.2012 kl. 14:41

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hagvöxturinn kemur til af því að fólk er hætt að greiða húsnæðislánin sín og tekur út aukalífeyrissparnaðinn, þetta hvorutveggja fer í aukna einkaneyslu, sem eykur hagvöxt til skamms tíma. EN HVAÐ SVO???  Hagvöxturinn er ekki tilkominn vegna vaxtar í atvinnulífinu, auknum framkvæmdum eða auknum fjárfestingum.

Jóhann Elíasson, 30.3.2012 kl. 16:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband