Össur: Jóhanna og ESB-umsóknin eru vandamálið

Fyrrum formaður Samfylkingar og núverandi utanríkisráðherra viðurkennir að flokkurinn er án forystu og í hugmyndakreppu. Jóhanna Sig. er forystukreppan, segir Össur, og þá hlýtur Evrópustefnan að vera hugmyndakreppan.

Við síðustu kosningar bauð Samfylkingin fram tvö mál: Jóhönnu og ESB-umsókn.

Hvorugt er að gera sig, samkvæmt Össuri. Bragð er að þá barnið finnur.


mbl.is Össur: Endurnýja þarf forystuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Þeir sem sjá drauga í öllum hornum og afneita framtíðinni er meginvandamál okkar í dag...sem sagt úrtölumenn dauðans.

Jón Ingi Cæsarsson, 29.12.2011 kl. 12:27

2 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Já, Jón Ingi, þetta er alveg ferlegt með 'ann Össur.

Páll Vilhjálmsson, 29.12.2011 kl. 12:33

3 identicon

Ha ha ha ha .....   Það er með ólíkindum hversu GÁFAÐUR þessi ESB - bloggskítaklessa Jón Ingi Cæsarsson getur verið.  Er ekki tími til kominn að draga saman í eina færslu eða jafnvel bók öll gullkornin sem þessi ÓGNAR MANNVITSBREKKA hefur látið frá sér fara og þá bara á þessari síðu og gefa út..???

.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 29.12.2011 kl. 14:50

4 identicon

Heill og sæll Páll jafnan; sem og aðrir gestir, þínir !

Fornvinur minn; Guðmundur Secundus (2.) Gunnarsson !

Þrátt; fyrir ýmsa meinbaugi Jóns Inga Cæsarssonar, vil ég ekki, að þú; hálfpartinn, talir svona niður til hans, á þann máta, sem þú viðhefir hér, ágæti drengur.

Jón Ingi; er einfaldlega einn fjölmargs ágæts fólks, sem á eftir að sjá Ljósið Guðmundur minn - og; verum þolinmóðir, þangað til.

L- listinn á Akureyri; er nú ein skærasta leiðar Stjarna Jóns Inga, og hver veit, nema hann eigi eftir, að verða dús, við þau Odd Helga, þar nyrðra ?

Spyrjum; að leikslokum, Gumundur minn.

Ekki; er allt sem sýnist, eins og Galdra- Imba kvað forðum (á 17. öld inni), Guðmundur Secundus.

Með beztu kveðjum; sem oftar, úr Árnesþingi /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.12.2011 kl. 16:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband